03.04.1940
Neðri deild: 29. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 482 í B-deild Alþingistíðinda. (1179)

48. mál, eftirlit með sveitarfélögum

Frsm. (Thor Thors):

Ég þarf ekki mörgu að svara f. h. allshn. Þær ræður, sem hér hafa verið haldnar, hafa verið á víð og dreif um ýmis efni, sem ekki koma beinlínis þessu máli við. Það hafa verið almennar hugleiðingar um fjárhag ríkissjóðs og sveitarfélaga, og sé ég ekki ástæðu til þess sem frsm. n. að gera slíkt að mínu umræðuefni. Það er vitanlega tilgangurinn með þessu frv. að fyrirbyggja það, að vanskil eigi sér stað hjá bæjar- og sveitarfélögunum. Í öðru lagi, ef vanskil eiga sér stað, að tryggja það, að þau verði sem minnst og standi sem skemmstan tíma, og að þjóðfélagið geri ákveðnar öryggisráðstafanir til þess að bjarga við bæjar- og sveitarfélögunum. Ég sé við nánari athugun, að 20. brtt. n. er ekki nægilega ákveðin; ég skal því leyfa mér, með leyfi hæstv. forseta, að lesa upp 20. brtt. n.: „Nú er fjárhagsáætlun samin og ekki hefir verið notuð heimild 36. gr., og það kemur í ljós, að tekjur hrökkva ekki fyrir útgjöldum, og er ráðh. þá heimilt að veita aðstoð samkv. 36. gr., eða að heimila hlutfallslega hækkun útsvara.“ Þetta síðasta ákvæði, að heimila hlutfallslega hækkun útsvara, er ekki nægilega ákveðið. Ég vil því leyfa mér að bera fram skrifl. brtt. frá allshn. Hún er þannig, að í stað orðanna, „eða að heimila hlutfallslega hækkun útsvara“ komi: eða hækka útsvör hlutfallslega. — Ég vildi svo að lokum mælast til þess, að brtt. n. verði samþ. og að málið fái skjóta afgreiðslu í þinginu.