05.03.1940
Efri deild: 10. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 489 í B-deild Alþingistíðinda. (1198)

42. mál, húsaleiga

Brynjólfur Bjarnason:

Eins og hæstv. félmrh. tók fram, er þetta frv. raunverulega ekkert annað en framlenging á ákvæðum l. um gengisskráningu og ráðstafanir í því sambandi.

Eins og hv. dm. muna var fyrir nokkrum dögum rætt hér í d. frv. um sama efni, sem ég er flm. að. Þetta frv. gekk að ýmsu leyti alveg í sömu átt og það frv., sem hér er verið að ræða um. Mitt frv. gekk bara lengra. Það er að segja, í því eru teknar fleiri hliðar á húsnæðismálunum, sem aðkallandi er, að verði leystar, en

ekki eru teknar með í frv., sem hér liggur fyrir. Þar eru til dæmis ákvæði, sem tryggja það, að leigjendur geti haldið húsnæði sínu og húseigendur geti haldið húseignum sínum, hvað sem á dynur.

Ef það á að skiljast svo, að mitt frv. sé með flutningi þessa máls úr sögunni, þá tel ég það illa farið. Ég mun þá hinsvegar reyna að flytja brtt. við þetta frv. Ég vildi eimitt af þessum ástæðum leggja það til, að málinu yrði vísað til allshn. aftur, ef hún vildi taka þessi mál til nánari yfirvegunar.