05.03.1940
Efri deild: 10. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 491 í B-deild Alþingistíðinda. (1200)
42. mál, húsaleiga
Páll Zóphóníasson:
Í sambandi við ræðu hv. 1. þm. Eyf. (BSt) vil ég taka það fram, að ég hefi athugað nokkra tugi húsa hér í Reykjavík og hve viðhald þeirra er mikill hluti af kostnaðinum. Mér hefir reiknazt, að sá kostnaður sé ?–? hluti af heildarkostnaðinum, sé reiknað með venjulegum vöxtum af húsverðinu. Auðvitað hækkar þessi liður mikið, og það verður að taka tillit til þeirrar hækkunar, og ég vil vænta þess, að hv. allshn. athugi það, að vegna þessa þarf húsaleiga að hækka, þegar hún fer að athuga frv.