11.03.1940
Efri deild: 14. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 492 í B-deild Alþingistíðinda. (1205)

42. mál, húsaleiga

*Frsm. (Sigurjón Á. Ólafsson):

Herra forseti! við 1. umr. þessa máls gerði hæstv. félmrh. allýtarlega grein fyrir efni þessa frv. Við allshnm. létum þá skína í, að við mundum bera fram brtt. síðar, og liggja þær nú fyrir á þskj. 96. Ég tel áþarft að fara inn á efni sérstakra gr. í frv., þær eru svo ljósar. Ég mun því aðallega snúa máli mínu að þeim brtt., sem n. hefir orðið sammála um að flytja.

Það er þá fyrst við 1. gr. við 1. umr. komu fram aths. frá hv. þm., sem flestar voru þess eðlis, að n. fannst rétt að taka þær í aðalatriðunum til greina. Ég minnist þess, að frá hv. 1. þm. Eyf. kom fram ábending, sem var réttlát og n. tók tillit til. Sú breyt., sem er gerð við 1. gr., er aðallega á þá leið, að setja inn í frv. 3 atriði, sem megi valda því, að húsaleiga hækki. Það er sökum viðhaldskostnaðar, eldsneytiskostnaðar, sem er innifalinn í húsaleigu, og í þriðja lagi vegna skattahækkana, sem kunna að verða á fasteignum. Þó að það sé ekki ennþá fyrir hendi, þá getur maður vel búizt við, að slíkt geti komið fyrir á þeim tíma, sem l. eiga að gilda.

Um fyrsta atriðið skal ég segja það, að allt, sem þarf til viðhalds húsa, hefir hækkað verulega, eins og yfirleitt allt, sem þarf að flytja til landsins. Mun sú hækkun nema um 30–100% samkvæmt upplýsingum frá stjórn fasteignaeigendafélagsins, sem kom á fund n. til viðtals um þetta mál. N. lítur svo á, að tvímælalaust sé réttlátt að gefa húseigendum heimild til þess að hækka leiguna með tilliti til þessa.

Ennfremur er n. sammála um, að þar sem hiti er með í leigunni, þar sé réttlátt að leigan hækki eftir því, sem eldsneyti hækkar í verði.

Í frv. er gert ráð fyrir, að húsaleigu megi ekki hækka nema við leigjendaskipti. Þessu vill n. breyta á þann hátt, að húsaleigu megi breyta á þeim venjulegu flutningsdögum, sem eru 14. maí og 1. okt.

Þá er gerð brtt. við 3. gr. Leggur n. þar til, að gerð verði sú breyt. á skipun n., að Fasteignaeigendafélag Reykjavíkur skipi einn mann, hæstiréttur formann og Alþýðusamband Íslands einn mann. Hefði verið til fjölmennt samband leigjenda, þá hefði ekki verið ólíklegt, að slíkur félagsskapur hefði tilnefnt þriðja manninn, en sé félagsskapur er ekki til. Hinsvegar er Alþýðusamband Íslands samnefnari, ef svo mætti að orði komast, fyrir verkalýðsfélögin í bænum, og þar er stór hópur leigjenda, þó að þar séu að vísu margir húseigendur líka. N. var því sammála um, að ekki væri hægt að finna neinn aðila, sem betur gæti komið fram sem fulltrúi leigjenda.

Stjórn Fasteignaeigendafélags Reykjavíkur lagði mikla áherzlu á að mega ráða einum manni í n., og fannst n. það eðlilegt, þar sem þeir upplýstu, að innan þess félagsskapar eru fyllilega 700 menn, sem eru húseigendur í bænum, og nokkur straumur af húseigendum inn í þennan félagsskap.

Þetta eru þær meginbreyt., sem n. leggur til. að gerðar verði. Að öðru leyti hefir hún ekki talið rétt að koma með brtt. að svo stöddu.

2. gr. frv. felur í sér mikilsvert atriði og er um það, að ekki megi segja upp leigu, nema þær ástæður séu fyrir hendi, sem þar er gert ráð fyrir, en það eru vanskil, brot á samningum o. s. frv. Ég geng þess ekki dulinn, að húseigendur mundu fyrst og fremst hafa óskað eftir, að engar hömlur hefðu verið lagðar á að mega segja upp húsnæði. En n. lítur svo á, að það ástand geti skapazt hér í Reykjavík, sem er stærsti bær landsins, að mjög væri varhugavert, ef svo lauslega væri um hnútana búið, að húseigendur gætu sagt upp eins og á venjulegum tímum. Það gæti orðið til þess, að stj. sæi sig tilneydda að setja bráðabirgðalög til að firra þeim vandræðum, sem annars mundu af hljótast.

Ég skal svo láta máli mínu lokið. Ég fer ekki út í aðrar gr. frv. Þær eru að mestu leyti umbúnaður um aðalefni frv., að öðru leyti en því, að í öðrum bæjum og kauptúnum eiga fasteignamatsnefndir að gegna því starfi, sem hin kjörna n. í Reykjavík á að gegna. Ég býst við, að ekki sé vert að kjósa sérstaka n. í einstökum bæjum til þess að hafa þessi mál með höndum, enda mun reynslan hafa verið og verða sú, að húsnæðisvandræði eru alltaf minni í hinum fámennari bæjum.

Ég vil svo vænta þess. að d. geti fallizt á brtt. þær, sem n. hefir leyft sér að bera fram.