18.03.1940
Efri deild: 19. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 509 í B-deild Alþingistíðinda. (1223)

42. mál, húsaleiga

*Magnús Jónsson:

Ég hygg, að brtt. á þskj. 134 séu til bóta, sérstaklega þó síðari brtt. Þar sem nú er öllum gert að skyldu að gera skrifl. samninga um húsnæði, þá tel ég það sjálfsagt að lækka eitthvað stimpilgjaldið af þessum samningum.

Ég skal svo mæla lítilsháttar fyrir mínum brtt. á þskj. 125.

1. brtt. er efnismest. Hún er við 1. gr. og er borin fram út frá þeirri hugsun, sem mér virðist, að muni vera í samræmi við tilgang frv., að komið sé í veg fyrir, að hægt sé að okra á húsaleigunni. Ég get ekki skilið, að það sé tilgangurinn með frv. að taka húsnæðið út úr öllu öðru í þjóðfélaginu og skapa því sérstöðu um verðlagið. Það er náttúrlega hægt að segja, að það sé erfitt að borga hækkaða húsaleigu, en það er ekkert erfiðara en að borga annað hækkað. Það má auðvitað beita áhrifum til þess að koma í veg fyrir meiri hækkun en nauðsynlegt er, en aðaltilgangurinn á að vera sá, að koma í veg fyrir okur á þessu sviði. Ef 1. brtt. mín verður samþ., er þessum tilgangi náð. Húsaleigunefndin starfar eftir sem áður, og hún metur alla leigu. Þannig er komið í veg fyrir okur á húsaleigunni, en jafnframt komið í veg fyrir, að nýbyggingar þurfi að stöðvast. Ég ætla ekkert að biðja fyrir till. Ég vil bara, að menn sjái það, að þessum höfuðtilgangi frv., að koma í veg fyrir okur á leigunni, honum er náð, ef mín till. verður samþ.

Ég held, að brtt. l,b geti varla orkað tvímælis. Ég held nú samt sem áður, að það hafi ekki verið hún, sem hv. 2. þm. S.-M. minntist á. Ég skil ekki í því, að það hafi verið ætlunin hjá þeim, sem sömdu frv., að einstök herbergi ættu að koma undir l. Slíkt væri hreinasta fjarstæða, því af einstökum herbergjum er mikið framboð, og framboðið á þeim eykst á erfiðum tímum. Á erfiðum tímum reynir fólk að þrengja að sér og leigja einstök herbergi af íbúðum sínum. Hvers vegna má þetta fólk ekki fá þá leigu fyrir herbergin, sem það getur fengið? L. eiga að vera til þess að vernda fjölskyldufólkið. Og því þá að vera að setja slík ákvæði, sem geri fólki erfiðara fyrir um að leigja frá sér einstök herbergi? Ég veit ekki heldur, hvernig væri hægt að framkvæma þetta með einstök herbergi. Það myndi að minnsta kosti auka störf húsaleigunefndar að miklum mun. Auk þess held ég, að þeir, sem búa í þessum einstöku herbergjum, séu menn, sem ekki sé nein sérstök ástæða til að vernda fram yfir aðra þegna þjóðfélagsins.

Hæstv. fjmrh. skaut því inn í, að ákvæði gengislaganna hefðu verið framkvæmd á þann hátt, að þau hefðu verið látin ná til einstakra herbergja. Ef svo er, þá verð ég að játa, að ég muni hafa syndgað í þessu efni. Ég hefi leigt út herbergi, og ég hafði satt að segja ekki hugmynd um, að ég þyrfti að fylgja neinum reglum um það. Leigan á þessu herbergi hefir hinsvegar verið svo lág, að ég geri ráð fyrir, að ekki hefði verið hægt að lækka hana, þó ég hefði gefið þetta upp við húsaleigunefnd. Ég fyrir mitt leyti verð að játa, að ég bar þetta fram sem leiðréttingu, og datt ekki í hug, að tilætlunin hefði verið að láta frv. ná til einstakra herbergja.

2. brtt. mín er um það að gera uppsagnarákvæðið rýmra, þannig að leigusala sé heimilt að segja manni upp, ef húsaleigunefnd metur, að það sé óþolandi fyrir viðkomandi leigusala að hafa leigjandann. Ég mælti svo fyrir þessu við 2. umr., að ég sé ekki ástæðu til að gera það frekar nú. Hv. 2. þm. S.-M. (IngP) var meðmæltur þessari brtt., og ég held, að ómögulegt sé að gera uppsagnarákvæðin svo þröng, að þetta atriði komi ekki til greina, því að maður getur hagað sér svo illa, að það sé miklu verra en vanskil. En ég mælti fyrir þessari brtt. við 2. umr. þessa máls, og ætla ekki að bæta neinu við nú.