18.03.1940
Efri deild: 19. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 515 í B-deild Alþingistíðinda. (1228)
42. mál, húsaleiga
*Frsm. (Sigurjón Á. Ólafsson):
Ég get verið fáorður um þær brtt., sem hér liggja fyrir, þar sem búið er að gera þeim allgreinileg skil. Um brtt. á þskj. 125 hefir verið rætt allýtarlega, fyrst af hv. 1. þm. Reykv. og síðan af hæstv. félmrh., og sá síðarnefndi hefir tekið fram flest af því, sem ég vildi sagt hafa. Ég vil þó taka það fram, að meiri hl. allshn. hefir rætt þetta frv.; þriðji nm. gat ekki mætt á þeim fundi, sem við töluðum um þetta. Við, sem skipum meiri hl. í allshn., vorum ákveðnir í að mæla móti fyrri brtt. á þskj. 125, undir staflið a. og b. Hinsvegar verð ég að segja það um brtt. á þskj. 125,2, að ég get tekið undir þær röksemdir, sem færðar voru fram fyrir henni við 2. umr., að ef leigjandi hefir í frammi óspektir og bakar húseiganda óþægindi, þó að eigi sé um vanskil að ræða, geti það verið uppsagnarsök. Ég get því fallizt á þessa brtt.
Ég þarf ekki miklu við það að bæta, sem sagt hefir verið um brtt. á þskj. 125,1. Ég vil þó benda hv. flm. á það, sem mér virtist ekki koma nógu skýrt fram í ræðu hæstv. félmrh., að það er mjög títt hér í bæ, að hjón taki húsnæði, sem síðari gr. till. ræðir um. Í mörgum tilfellum er um þannig húsnæði að ræða, sem fámennar fjölskyldur láta sér nægja. Þær leigja oft eitt herbergi með einhverri útbyggingu, t. d. skot inn í eldhúsi, sem ekki er hægt að reikna sem fullkomið eldhús. Þess gætir mjög hér í Reykjavík, að margt fólk verður að sætta sig við að taka sér ekki stærri íbúðir en það notar sjálft og svo, að fjölskyldan rétt geti komizt þar inn, til þess að tryggja sér lægri leigu. Margar fjölskyldur reyna því að leigja sér einhleypingsherbergi. Það er því fjarstæða að tala um, að það sé athugavert, að l. nái til einhleypingsherbergja.
Ég get ekki verið hv. 11. landsk. þm. (MG) sammála um, að það sé ávallt framboð á húsnæði hér í bæ. við, sem erum kunnugir hér, vitum, að eftirspurn á einhleypingsherbergjum er mjög mikil á haustin, þegar mest fjölmenni flyzt hingað til bæjarins. En á sumrum stendur oft mikill hluti þeirra auður, því að þau leigjast ekki yfir sumartímann. Ef ekki væru ljós ákvæði um þetta í l., þá gæti húsaleiga á einstökum herbergjum farið upp úr öllu valdi, þegar eftirspurnin er svo mikil, að menn verða að taka það, sem þeir geta fengið. Það er á hverjum tíma mjög varhugavert að opna hér gátt.
Um a-lið 1. brtt. á þskj. 125 má segja það, sem kom skýrt fram við 2. umr., að sú stefna, að leyfa mönnum að hækka húsnæði til samræmis við verðlag, sé ekki heppileg. Hv. 1. þm. Reykv. (MJ) vék að því, að rétt væri, að húsaleiga mætti fara eftir vísitölunni, sem farið er eftir við ákvörðun kaupgjalds, það er að segja, farið sé eftir þeirri verðhækkun, sem verður á vörum á hverjum tíma. En það er ekkert, sem í raun og veru gefur ástæðu til að hækka húsaleigu nema hækkun á viðhaldskostnaði og annað slíkt, nema ef um það væri að ræða, að menn færu hreint og beint að braska með húsnæði, því að þá býst ég við, að þar við lendi, að húsnæði hækki upp úr öllu valdi. Húsaleigul. eiga að vera grundvöllur fyrir því, að húsin hækki ekki óhæfilega í verði. Ég veit, að það yrði hættulegt, en yrði enginn búhnykkur fyrir húseigendur, heldur myndi það hefna sín, þegar breyttir tímar koma og allir peningar hækka í verði.
Ég vildi svo aðeins segja nokkur orð út af þeim umr., sem orðið hafa um brtt. okkar 2. þm. S.-M á þskj. 134 um stimpilgjaldið. Það hefir verið sagt með réttu, að það væri fundið fé fyrir ríkissjóð það stimpilgjald, sem kemur fram við það, að allir húsaleigusamningar eiga að vera stimplaðir. Ég er sömu skoðunar og hæstv. félmrh., að tekjur ríkissjóðs muni sennilega aukast við þessa ráðstöfun. Ég hygg, að flestir muni vera þeirrar skoðunar, að lítill hluti þeirra húsaleigusamninga, sem gerðir hafa verið, hafi verið stimplaðir. Það hefir verið svo, að menn hafa ekki áttað sig á því, að það væri nauðsynlegt, og því hefir lítill hluti af stimpilgjaldinu komið fram við slíkar samningagerðir. Nú er það ljóst, að allir samningar hljóta að koma í dagsins ljós, ef þetta frv. verður samþ. Það er líka í beinni stefnu við frv. að íþyngja ekki leigjendum eða húseigendum með því að setja gjaldið hærra en nauðsynlegt er. Við höfum farið þá leið að setja það niður í 2 kr. og hafa það jafnt fyrir alla samninga. Við töldum ekki fært að greina þarna í milli, því að það hefði gert þetta svo margbrotið. Við komumst því að þeirri niðurstöðu, að það væri réttlátt að hafa gjaldið lágt, og hafa það lágt fyrir alla. Það má þó ekki gleyma því, að í okkar brtt. felst ekki það, að fella niður þann viðauka, sem samkv. öðrum l. er hægt að leggja á allt stimpilgjald, en það er 40%. Gjaldið verður því í raun og veru hærra en þessar 2 kr. Ég mun því halda mig við okkar till. í þessum efnum. Það má náttúrlega segja, að 1–2 kr. geri hvorki til né frá.
Að öðru leyti vil ég svo ekki tefja þessar umr.