18.03.1940
Efri deild: 19. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 522 í B-deild Alþingistíðinda. (1238)

42. mál, húsaleiga

*Magnús Jónsson:

Ég vildi aðeins segja örfá orð viðvíkjandi ræðu hv. 2. þm. S.-M. Ég tók eftir því, þegar ég skrifaði mína brtt., að hún féll illa inn í, og vil ég segja það, að eftir hans ræðu hefir þetta dregizt enn greinilegar fram í huga mínum, og sé ég glöggt það ósamræmi, sem er í því, sérstaklega þar sem vafi er á, hvort farið er eftir lögunum frá 1921, eða það mætti skiljast svo sem það væri á valdi einhvers aðila. Ég vil samt ekki, að þessi hugmynd fari forgörðum. Ég vil benda á eitt atriði í því, ef einstök herbergi eiga að falla hér inn í, og það er, þegar leigusamningar eru gerðir, kannske 4 sinnum á ári fyrir herbergi, sem kosta 20 kr. á mán. eða jafnvel ekki nema 15 kr., hvílíkur kostnaður það er hlutfallslega. Ef umr. yrði lokið núna, vildi ég óska að málið yrði tekið út af dagskrá, því í að þetta er ekki nema orðalagsatriði, því að menn sjá, að ef fyrir 20 kr. herbergi á að greiða stimpilgjald 4 sinnum á ári, er það allmikið og nær engri átt. Þótt brtt. mínar og hv. 1. þm. N-M. yrðu samþ., yrðu samt nokkur herbergi, sem falla undir þetta, og mundi það lítið tefja málið, þótt atkvgr. yrði frestað, svo hægt væri að ganga vel frá þessu atriði.