15.04.1940
Efri deild: 35. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 530 í B-deild Alþingistíðinda. (1267)
42. mál, húsaleiga
*Magnús Gíslason:
Frsm. meiri hl. hefir getið um þær breyt., sem þetta frv. tók í Nd. Ég hefi borið hér fram brtt. um það, að skipun n. skuli hagað á þann hátt, sem gert var ráð fyrir í frv. eins og það var samþ. hér í d., sem sé að hæstiréttur tilnefni einn, einn verði tilnefndur af Fasteignaeigendafélagi Reykjavíkur og einn af Alþýðusambandi Íslands. Meðnm. mínir hafa ekki getað orðið mér samferða í þessu og telja ekki rétt að breyta þessu af ótta við, að frv. nái þá ekki fram að ganga. Ég tel hinsvegar réttast að hafa þetta á þennan hátt. Það hafa komið fram ákveðin tilmæli frá Fasteignaeigendafélagi Reykjavíkur um að fá einn mann í húsaleigunefnd. Og af þeirri reynslu, sem fékkst af þessum málum 1914–1918, þá er það ljóst, að það er mjög mikið undir því komið með árangurinn af starfi þessarar n., að ekki skapizt tortryggni viðvíkjandi framkvæmd l. En ég er þeirrar skoðunar, að einmitt með því að Fasteignaeigendafélagið eigi sinn fulltrúa í n., þá sé stórt spor stigið til þess að reyna að koma í veg fyrir slíka tortryggni. Að hætta sé á því, að frv. dagi uppi í þ., þótt þessu sé breytt, það held ég, að engin hætta sé á, vegna þess að ekki mun vera útlit fyrir, að þinglausnir séu svo nærri, að við tímaskorti megi búast. Sé það hinsvegar ekki vilji Alþ. að setja slíka löggjöf sem þessa, sem ég tel annars óþarfa, eins og ég hefi áður lýst, þá er ekki nema gott, ef hv. þm. átta sig á því, að svona löggjafar sé ekki þörf.