30.03.1940
Neðri deild: 26. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 532 í B-deild Alþingistíðinda. (1275)
40. mál, alþýðutryggingar
*Jón Pálmason:
Ég skal ekki fara mikið út í umr. um þetta mál. Ég hefi ekki heldur kynnt mér það svo mikið. En ég sé það, að samþykkt þess mun valda ríkissjóði mjög miklum auknum kostnaði, og kemur það mest fram undir 6. lið, sem getið er um í nál., þar sem ætlazt er til, að sjúkrasamlögin séu losuð við sjúklinga með langvarandi sjúkdóma.
Vildi ég því gera fyrirspurn til frsm. allshn. um það, hvort n. hafi rannsakað eða athugað nokkuð náið, hve miklu þessi kostnaður muni nema, sem færður er þarna frá sjúkrasamlögunum og yfir á ríkissjóð. Annars skal ég ekki ræða þetta meira að sinni, en mér þykir nokkuð mikilsvert að fá um þetta upplýsingar, þar sem um svo mikið fjárhagsatriði fyrir ríkissjóð er að ræða.