01.04.1940
Neðri deild: 27. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 534 í B-deild Alþingistíðinda. (1285)

40. mál, alþýðutryggingar

*Félmrh. (Stefán Jóh. Stefánsson):

Ég vildi aðeins af því, að ég hefi nokkuð staðið að flutningi þessa máls, þakka hv. n. fyrir þá afgreiðslu, sem hún hefir veitt málinu, og fyrir þær brtt., sem hún hefir lagt fram. Ég tel, að þær séu allar þess eðlis, að telja megi þær til bóta, enda fáar þeirra um efnisbreyt., heldur eru það lagfæringar, eins og hv. frsm. hefir tekið fram. Vildi ég mega vænta, að málið gangi áfram gegnum hv. d. samkv. till. allshn.