02.04.1940
Neðri deild: 28. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 536 í B-deild Alþingistíðinda. (1289)

40. mál, alþýðutryggingar

*Ásgeir Ásgeirsson:

Ég bið hæstv. forseta að athuga það, að þar sem greinatala frv. breyttist við 2. umr., á brtt. á þskj. 116, sem þá var tekin aftur til 3. umr., ekki lengur við 17. gr., eins og í brtt. stendur, heldur við 18. gr.

Það, sem við flm. þessarar brtt. leggjum til, er, að þeir, sem greiða í eftirlaunasjóði Landsbankans og Útvegsbankans, verði framvegis gjaldfrjálsir til lífeyrissjóðs, eins og verið hefir undanfarið. Lögin um eftirlaunasjóð Landsbankans eru eldri en l. um alþýðutryggingar, og þar sem bankastarfsmenn eru búnir að hafa þessi réttindi um nokkurt skeið, þá virðist nokkuð hart að gengið að afnema þau. Það var að vísu fremur tilviljun, að útvegsbankal. voru sett nokkuð af öðrum ástæðum og undir öðrum kringumstæðum en landsbankalögin, og hafa í rauninni aldrei verið undirbúin til hlítar. Það þótti sjálfsagt, að starfsmenn Útvegsbankans nytu sama réttar og starfsmenn Landsbankans. Ég lít því þannig á, að ekki sé rétt að taka þessi réttindi af bankastarfsmönnum. Að vísu eru til fleiri stofnanir, sem hafa eftirlaunasjóði, en það hefir ekki verið tekið það ráð, að fá sömu fríðindi fyrir þær stofnanir, þó að þessi réttur sé látinn haldast hjá þeim, sem hafa notið þeirra. Þetta er í sjálfu sér ljóst mál, og verður að vænta þess, að þau réttindi, sem þessar stofnanir hafa notið nú um tíma, verði ekki af þeim tekin.