11.04.1940
Efri deild: 32. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 542 í B-deild Alþingistíðinda. (1302)

40. mál, alþýðutryggingar

*Frsm. (Sigurjón Á. Ólafsson):

Ég skal ekki deila mikið við hv. 1. þm. Reykv. um þetta. En mín skoðun raskaðist ekkert á málinu við hans ræðu, því að hann færði engin rök á móti því, að ef starfsfólk bankanna verður undanþegið þessum greiðslum, þá verður erfiðara fyrir Alþ. að standa á móti kröfum annara sjóðfélaga, sem kynnu að myndast á sama eða svipaðan hátt. Ég benti líka á, að það hafa þegar legið fyrir umsóknir um þetta frá sjóðfélögum í lífeyrissjóði starfsfólks Eimskipafélags Íslands, og jafnvel frá fleirum slíkum félögum, sem ég nefndi. Ég þekki t. d. stéttarfélag prentara, sem hefir myndað slíkan sjóð. Öll þessi félög hafa sótt um að fá að njóta samskonar sérréttinda eins og sjóðfélagar bankanna hafa fengið. Ég get ekki séð, að það sé gengið verulega harðara að þessum mönnum, sem þarna eiga hlut að máli, heldur en hverjum öðrum borgara í þjóðfélaginu. Það er vitanlegt, að efnaðri borgarar þjóðfélagsins verða að borga 1% skatt af skattskyldum tekjum til lífeyrissjóðs, auk nefskattsins, 7 kr. gjaldsins, án þess þó að vita, hvort þeir nokkurn tíma þurfi að njóta styrks úr lífeyrissjóðnum. Hið sama kemur og til að gilda fyrir aðra, sem vinna í stofnunum hliðstæðum bönkunum. Ég sé því ekki, að ástæða sé til að gera mun á þessum þegnum þjóðfélagsins og hinum, sem ekki eru svo stæðir, að þeir hafi aðstöðu til að mynda slíka sjóði. Ég man líka ekki heldur betur en að bankarnir leggi árlega fram töluverða fúlgu í eftirlaunasjóði fyrir starfsmenn sína. Menn þessir eru því styrktir af því opinbera, eða svo gott sem það. Hér er því engin ástæða til þess að gera undantekningu, og ég tel því jafnframt rétt að stöðva þessa skriðu. Meiri hl. n. lítur því svo á, að brtt. þessi eigi ekki að ná fram að ganga, því að hún sé skaðleg fyrir lífeyrissjóðinn, og að síðustu vil ég segja hv. 1. þm. Reykv. það að ég gat alls ekki sannfærzt af ræðu hans um réttmæti brtt. þessarar, heldur fékk ég staðfestingu á skoðun minni um það, að hún myndi skapa misrétti, ef hún yrði samþ.