03.04.1940
Efri deild: 28. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 548 í B-deild Alþingistíðinda. (1342)
100. mál, talstöðvar í fiskiskip o. fl.
Þorsteinn Þorsteinsson:
Þetta frv., sem hér liggur fyrir, er um heimild fyrir hæstv. ríkisstj. til lántöku, og það er ekki alveg nýtt, að farið sé fram á slíkt. Það er sennilega nauðsynjamál að koma talstöðvum í fiskiskip, og er ekki neitt við því að segja. En ég vildi, að orðalagið yrði dálítið skýrara í 2. málsgr. 1. gr., og ætla að leyfa mér að bera fram skriflega brtt. þar að lútandi. Ég legg til, að upphaf 2. málsgr. 1. gr. orðist þannig: „Skal láni þessu varið til þess að gera landssímanum fært að selja, sér að skaðlausu, öllum íslenzkum þilskipum“ o. s. frv. Þess verður að sjálfsögðu að gæta, að landssíminn verði ekki fyrir neinum skakkaföllum, þó að hann selji þessar talstöðvar. Landssíminn mun auðvitað selja þessar talstöðvar við svo vægu verði sem hann getur sér að skaðlausu.
Ég þarf ekki að orðlengja um þessa brtt., því að hún er sjálfsögð og aðeins til skýringar á orðalaginu, svo að það valdi ekki misskilningi. Ég vil svo afhenda hæstv. forseta þessa brtt. mína.