30.03.1940
Neðri deild: 26. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 554 í B-deild Alþingistíðinda. (1385)

8. mál, jarðhiti

*Frsm. (Sveinbjörn Högnason):

Eins og nál. allshn. ber með sér, hefir n. orðið ásátt um að mæla með samþykkt þessa frv., en flytur við það eina brtt., sem nokkru máli skiptir. Þessi brtt. er við 7. gr., en sú gr. er ákvæði um, að taka megi jarðhita eignarnámi til almenningsþarfa, án þess að sérstök heimild hafi verið til staðar í hverju einstöku tilfelli af hálfu Alþ. N. leit svo á, að rétt mundi vera að fella þetta ákvæði niður, þó að eignarnám yrði með því móti torveldara í framkvæmd, þar sem Alþ. yrði að gefa til þess leyfi í hvert sinn, sem nauðsyn bæri til. Í samræmi við þessa brtt. hefir n. lagt til, að gerð verði breyt. á 8. gr., um að fellu niður orðin „sbr. 7. gr.“.

Að öðru leyti hafði n. ekkert við frv. að athuga, en leggur til, að það verði samþ. með þessum breytingum.