13.04.1940
Efri deild: 34. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 555 í B-deild Alþingistíðinda. (1396)
8. mál, jarðhiti
*Magnús Gíslason:
Á undanförnum árum hafa augu manna opnazt meir og meir fyrir því, hversu miklir fjársjóðir væru fólgnir á þeim svæðum, sem jarðhiti er í. Einkum hefir þetta vakið mikla athygli manna að því er snertir hverahitun. Og þetta hefir komizt svo langt, að ráðizt hefir verið í stórt fyrirtæki í því sambandi, þar sem er hitaveita Reykjavíkur. Auk þess er vitað, að á þessum hverasvæðum eru ýmiskonar verðmæt efni fólgin í jörðu, ýmist ofanjarðar eða í jörðu. Má þar nefna brennisteininn, og í sambandi við hann á einum stað hefir risið upp iðnaður. Um fleiri slík efni er vafalaust að ræða. Þá er haldið, að allmikið af radíum muni finnast hér á landi, enda þótt rannsókn hafi ekki leitt í ljós, hvort kostur sé á að vinna þetta efni. Auk þess er vitað, að í hveravatni er fólginn mikill lækningarkraftur, sem reynzt hefir vel hér á landi og erlendis að því er snertir sjúkdóma eins og gigt. Um allt þetta er lítið rannsakað hér á landi, og full ástæða til, að af hálfu ríkisvaldsins verði gerð gangskör að því að fá upplýst á vísindalegan hátt, hvernig þetta mætti nota landinu til sem mestra hagsmuna. Ég hefði því talið rétt, að um þetta yrðu sett l., og það sem fyrst. En ég hefði talið heppilegra, að frumkvæði að slíkum l. hefði ríkisstj. átt eftir að hafa látið fara fram ýtarlega rannsókn á þessu.
Það frv., sem hér liggur fyrir og hefir verið samþ. af Nd., er að sjálfsögðu borið fram í þeim tilgangi að setja á einhverja skipun um þessi mál. En ég tel frv. svo ófullkomið, að það muni verða lítið lið að því, og ég hefi verið í vafa um, hvort ástæða væri til að láta það ná framgangi á þessu þingi. En ég vænti þess, að það líði ekki langur tími þangað til að ríkisstj. taki málið til athugunar og þá verði sett ný l. um þetta í líkingu við það, sem gert var 1923, þegar vatnal. voru sett. Því að það er ekki vafi, að ef á að rannsaka þessi mál verulega, þarf eins ýtarleg l. um þessi verðmæti og meðferð þeirra eins og sett voru með vatnal.
Þetta frv., sem hér liggur fyrir, er svo ófullkomið, að ekki verður séð, hvort einungis er átt við lauga- og hverahitann, sem er aðeins einn liðurinn í þessu máli, eða hvort einnig er átt við framleiðslu þeirra verðmætu efna, sem kunna að felast á þessum heitu svæðum.
Fyrirsögn frv. er: frv. um eignar- og notkunarrétt jarðhita, — og í 1. gr. frv. er talað um hagnýtingu á hverum og laugum og innan sviga „jarðhita“. Það lítur svo út, að fyrir flm. hafi vakað, að þessi l. nái eingöngu til jarðhita. Svo er talað um það í 3. gr., að landeiganda sé rétt að hagnýta sér hveri og laugar eins og honum bezt þykir henta til heimilisþarfa, framleiðslu og iðnaðar, sbr. þó 4. gr. En svo eru engar reglur settar nánar um það, hvað meint sé með því eða hvað sé átt við með hagnýtingu hvera til iðnaðar og framleiðslu. En það mun ekki geta verið átt við nein efni, sem finnast á hverasvæðunum. Þetta virðist mér benda til þess, að málið hafi verið heldur lítið undirbúið og þyrfti mikið að breyta frv., til þess að þetta gæti orðið að verulegu gagni og náð þeim tilgangi, sem nauðsynlegt væri.
Ég hefi gert eina litla brtt. við frv., sem aðeins snertir 6. gr. þess, um forkaupsrétt á jörðum þeim, sem jarðhitaréttindi fylgja. Í frv. er gert ráð fyrir því, að ríkið skuli hafa forkaupsrétt, að þeim aðilum frágengnum, sem veittur er sá réttur með l. um forkaupsrétt jarða, sem eru ábúandi og sveitarsjóður. Hér í frv. er bætt við ríkissjóði að hinum frágengnum. Nú er það svo, að samkv. l. hefir meðeigandi í jörðum ekki forkaupsrétt. Það er aðeins í því tilfelli, að ábúendur séu tveir á jörð og annar þeirra eða einhver er á jörðinni, þá á sá ábúandi, sem fyrir er á jörðinni, forkaupsréttinn að hinum hlutanum. Annars hefir forkaupsréttur meðeiganda ekki verið ákveðinn í lögum.
Í þessu frv. er einnig í 4. gr. gengið nokkuð inn á þetta mál, þar sem það ákvæði er sett, að ef annar eða einhver jarðeigenda vill hagnýta sér hvera- eða laugaorku, sem er sameiginleg, en hinn eða hinir ekki, skal þá sá eða þeir, sem vilja, eiga rétt á, annaðhvort að fá orkuna keypta eftir mati eða taka hana á leigu, sem ákveðin sé með mati, þó þannig, að í báðum tilfellum hafi sá eða þeir, sem ekki vilja hagnýta sér orkuna, eftir nægilega orku til heimilis- og búsþarfa. Þannig er þeim, sem vilja hagnýta sér orkuna, veittur forkaupsréttur á orkunni, en ekki landinu, sem orkan er í. Og þá virðist eins og orkan geti orðið honum lítils virði, ef hann ekki hefir eignarrétt á jörðinni. Þess vegna er lagt til með þessari brtt., að næst á eftir ábúanda fái meðeigandi forkaupsréttinn, að ábúanda frágengnum, og þar næst sveitarsjóður og þá ríkissjóður.
Eins og ég mun hafa tekið fram, hefi ég ekki beinlínis viljað vera á móti því, að frv. nái fram að ganga með þeim breyt., sem ég vil gera á því. En ég tel, að með þessu frv. sé tjaldað til einnar nætur. Ég álít, að þetta mál þyrfti að taka til ýtarlegri athugunar heldur en gert hefir verið hingað til.