15.04.1940
Efri deild: 35. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 565 í B-deild Alþingistíðinda. (1405)

8. mál, jarðhiti

*Magnús Jónsson:

Ég skil í raun og veru ákaflega vel afstöðu hv. frsm. Það mátti heyra á honum, bæði í n. og nú, að hann telur þessa löggjöf ekki fullkomna smíð og að ýmislegt ófyrirsjáanlegt geti af henni leitt, en hann treystir því, að þær afleiðingar verði í vil þeirri stefnu, sem hann og flokkur hans hefir fylgt, að koma sem flestu undir hið opinbera. Það er framhald af fjandskap þeirra við sölu þjóðjarða og kirkjujarða og sjálfsábúðarstefnuna sjálfa, ef að er gáð. En mér finnst það hastarlegt samt, ef nú á að fara að brjóta svona í bág við stefnu ábúðarlaganna og margra annara laga, um að efla sjálfsábúð í landinu. Ég veit ekki, hvort hv. þm. treystir sér til að samræma það eða afsaka. Því að í frv. er berlega að því stefnt, að ríkið eignist ákveðna tegund jarða í landinu, hvort sem er jarðhita þeirra vegna eða ekki hans vegna.

Ágreiningur okkar hv. þm. S.-Þ. er ekki svo mjög um það, hvort setja eigi lög um þessi efni, eða það, hvort Húsavík ætti að tryggja sér sem fyrst jarðhita í Reykjahverfi fremur en láta hann áður lenda í „spekulation“ o. s. frv. Ég er honum sammála um það, að bæir og ríkið eigi að tryggja sér fyrr en síðar afnot þeirra orkulinda, sem líklegt er, að verði nytjaðar til almenningsþarfa. Þetta reyndi „hin skammsýna stjórn Reykjavíkurbæjar“ að gera, þegar hún komst yfir hitann á Reykjum. Ágreiningur okkar er um það, hvort frv. sé nægilega undirbúið. — Því miður er ég hræddur um, að lóðaspekulationir í Reykjavík fyrr á árum komi þessu máli lítið við, og ég spara mér því að deila um þær núna. Þegar bær er að stækka, vex verð lóða sjálfkrafa, þótt ekki komi brask til. Hve oft og hve smátt í senn skyldi sá blettur hafa hækkað í verði, sem Hótel Borg stendur á? Það er eins og georgisma hv. þm. frá æskuárum hans í Þingeyjarsýslu skjóti hér upp án nokkurra rökréttra tengsla við veruleika nútímans.

Hv. þm. (JJ) ræddi um það, að jarðhitinn væri einskonar náma, grundvöllur stórrekstrar í framtíðinni. Þetta er rétt á einstöku stað, en þm. blandar hér saman þeim stöðum og laugum, sem eru þýðingarlausar í því sambandi. Ég vil láta rannsókn skilja þar á milli, áður en löggjöf þessi er sett. Það eru e. t. v. ekki nema einir tíu staðir á landinu, þar sem hverir geta orðið undirstaða stórfelldra framkvæmda. Hvaða vit er þá að stefna að því að koma hundrað jörðum undir ríkið undir þessu yfirskini.

Rannsókn á þessu getur náttúrlega ekki náð lengra en beztu manna yfirsýn á hverjum tíma, og hugsanlegt, að eitt jarðhitasvæði eða svo kynni að verða út undan við fyrstu athuganir, en það er ekkert hættulegt. Hv. þm. (JJ) talaði um það hneyksli, að Geysir skyldi komast í eigu Englendings. Víst var það hneyksli og sýndi sljóleik manna hér fyrir því, hvers virði náttúrufegurð landsins á að vera fyrir metnað okkar og sæmd. En ekki datt þessum manni víst í hug að fara að virkja hverinn. Fyrir því gátum við verið óhræddir. Enda hefði í því tilfelli verið sjálfsagt og auðvelt að hindra það og taka hann eignarnámi. Þegar selja átti Gullfoss og dóttir bóndans í Brattholti kom í veg fyrir það, var það ekki vegna annars en fegurðarinnar og sómans, að slíkur foss kæmist ekki í erlendra manna hendur. Og það er áreiðanlegt, að við þurfum ekki að nota hitaorku Geysis til framkvæmda.

Ég skal svo ekki fjölyrða um þetta. Ég hefi lýst fylgi mínu við brtt. á þskj. 422. Hún er að öllu leyti eðlileg og heilbrigð. Það er rétt, að þegar margir eru meðeigendur, kannske 4, 5 eða 6, náði seljandi, hverjum þeirra hann selur helzt. Minna má sjálfræði hans ekki vera. Þessi brtt. gengur það langt í rétta átt, að ég get þá fremur sætt mig við, að frv. gangi fram, og má þá lagfæra löggjöf þessa síðar.