15.04.1940
Efri deild: 35. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 568 í B-deild Alþingistíðinda. (1408)
8. mál, jarðhiti
*Magnús Gíslason:
Ég hygg, að ummælum hv. 2. þm. N.-M. um vinnubrögð n. hafi verið beint til mín. En ég minni á það, að fyrst, er ég talaði í málinu, gat ég þess, að ég væri því ekki mótfallinn, að málið gengi fram á þessu þingi, í trausti þess, að ríkisstj. tæki málið til athugunar bráðlega við betri skilyrði. En þess er ekki að vænta, að n., sem vantar skilyrði og gögn, geti lagt fram gagngerðar brtt. á svo skömmum tíma sem þeim, er hún hafði til umráða.