15.04.1940
Efri deild: 35. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 568 í B-deild Alþingistíðinda. (1409)

8. mál, jarðhiti

*Magnús Jónsson:

Hv. þm. N.-M. kvað það rangt að vitna í ábúðarl. því til sönnunar, að það væri yfirlýstur vilji Alþ., að bændur ættu að eiga jarðir þær, er þeir byggju á. En ég sný ekki aftur með það. Alþ. hefir að vísu aðeins í þetta eina skipti lýst yfir þessum vilja sínum á ótvíræðan hátt, og breytingar á þessum vilja þingsins myndu koma fram í breytingum á ábúðarl. En þar stendur allt óbreytt. Þetta frv. sýnist aftur benda til þess, að nú séu að koma fram á Alþ. menn, sem hvika vilja frá þessari stefnu. En hin l., sem hv. þm. vitnaði í, sýnast mér ekki koma þessu máli nokkuð við. L. um jarðakaup ríkissjóðs eru bara bjargráðaráðstöfun, en ekki gerð til þess að lýsa yfir neinni sérstakri stefnu í þessum málum. Og l. um erfðaábúð og óðalsrétt hefi ég skilið einmitt sem framhald af þeirri stefnu, að menn skuli eiga ábúðarjarðir sjálfir, þó að þar sé um það að ræða að festa jarðirnar í einstökum ættum.