05.04.1940
Efri deild: 30. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 585 í B-deild Alþingistíðinda. (1488)

22. mál, skógrækt

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti! Enda þótt ég sé ágreiningslaust fylgjandi brtt. n., verð ég samt að fara nokkrum orðum um 4. till., við 17. gr.

Ég lít svo á að því er snertir lönd, sem ríkið á, hvort sem þau eru ætluð til skógræktar eða annars, að réttast sé, að ríkið hafi sömu skyldum að gegna og aðrir jarðeigendur, en þeim ber að hreinsa land sitt fyrir sauðfé og sjá um grenjavinnslu eftir ákvæðum hreppsnefndar. Þrátt fyrir þetta gekk ég inn á það til samkomulags, þar sem skógræktin getur ekki talizt sauðfjáreigandi, að dýraleit og grenjavinnslur skuli framkvæmdar á kostnað viðkomandi hreppa, enda má deila um, hvort ekki eigi svo að vera að lögum, og ennfremur að ráðh. sé heimilt að gera undantekningu að því er smölun og fjallskil snertir, og skylda sveitarfélög þau, er fjárvon eiga innan girðinga Skógræktarinnar, til þess að annast þau verk á sinn kostnað. En þó að þessi heimild sé veitt, ætlast ég ekki til, að henni sé beitt nema þegar sérstakar ástæður eru fyrir hendi.

Skógræktin á nú mörg lönd, svo sem Þórsmörk, Haukadal, Þjórsárdal, Hallormsstaðaskóg, Sigríðarstaðaskóg o. s. frv., þar sem hagar að ýmsu leyti mjög mismunandi til. Þegar sterkur grunur liggur á því, að fjáreigendur geri sér leik að því að nota hið friðaða land til beitar, er eðlilegt, að ráðh. fyrirskipi þeim að hreinsa það af sauðfé. Aftur nær engri átt að fara að skylda fjáreigendur til að smala lönd innan girðinga, þó t. d. viðhald þeirra sé trassað, svo fé smjúgi inn í þær.

Ég vil þá láta það koma ótvírætt fram, að ég — og ég vona deildin öll — líti svo á, að heimildina til að skylda fjáreigendur til að hreinsa girðingarnar af fé eigi einungis að nota, ef grunur leikur á því, að þeir hafi viljandi sleppt fé inn í skógræktargirðinguna.