04.04.1940
Neðri deild: 30. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 599 í B-deild Alþingistíðinda. (1542)

101. mál, jarðir í Ölfusi

Bjarni Bjarnason:

Ég ætla ekki að gera að umtalsefni kaup ríkisins á jörðum né eignarnám vegna nýbýla almennt, en ég vildi aðeins segja örfá orð um þetta sérstaka mál, eins og það liggur fyrir.

Ég geri ráð fyrir, að við nánari athugun komi það í ljós, að þær jarðir, sem gert er ráð fyrir að heimila ríkisstj. að kaupa eða taka eignarnámi, ef ekki nást samningar um kaup, reynist ekki svo landmiklar sem landnámsnefnd ríkisins ætlar. Um Hvamm er það að segja, að sú jörð á ekki nema nokkurn hluta af mýrinni norðan vegar í kverkinni milli Reykjafjalls og Ingólfsfjalls, en til þess að framræsla á Hvammslandi geti komið að fullum notum, þá hygg ég, að þurfi að ræsa fram allt þetta land, en þá þarf að kaupa þar fleiri jarðir. Þetta kemur að sjálfsögðu í ljós, þegar þetta verður athugað nánar.

Um jarðirnar, sem eru sunnan vegar og sunnan Ingólfsfjalls, er það að segja, að landrými er þar að vísu nokkuð, og þá sérstaklega á Kirkjuferju. Ég hygg, að það land sé einna stærst og einna bezt fallið til fjölgunar býla. Árbær og Þórustaðir eru ekki verulega landstórar jarðir, og allra sízt Hellir.

Það ber að sjálfsögðu að viðurkenna, að ef mýrarnar eru þurrkaðar, þá verður þar vitanlega miklu verðmætara land. Ég skal ekki segja um, hvað land má minnka mikið við það, að mýrarnar eru þurrkaðar, og verða þó að sama gagni og áður. Ég veit, að menn muni geta þrengt eitthvað að sér, þegar búið er að þurrka mýrarnar, en ég býst við, að það komi í ljós við nánari athugun, að til þess að um verulegt land til fjölgunar býla sé að ræða, þá þurfi löndin að vera stærri og sérstaklega með tilliti til þess að gera þau aðgengilegri, og ef vel tekst með þurrkun, sem verður að framkvæma, eru fjársjóðir í forunum, sem ekki eru notaðir nema að litlu leyti, og vil ég ekki mæla á móti því. Fjölgun býla er sjálfsögð, en það geta alltaf verið skiptar skoðanir um það, hvar eigi að byrja.

Ég vil taka undir með hv. frsm. um það, að ekki verði farið að þessu nema með sanngirni, og vil fyrir hönd þeirra ábúenda, sem hér eiga hlut að máli, óska þess, að hér verði farið að með fullri gætni og tekið tillit til þeirra bænda, sem þessar jarðir eiga, og komizt að samkomulagi við þá, ef unnt er. Það er leiðinlegt fyrir hvaða ríkisstj. sem er að þurfa að taka jarðir eignarnámi af bændum, þótt það sé gert til hagsmuna fyrir fleiri.