12.04.1940
Neðri deild: 34. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 602 í B-deild Alþingistíðinda. (1552)
101. mál, jarðir í Ölfusi
*Eiríkur Einarsson:
Ég gat þess við 1. umr. þessa máls, að það, sem mér þætti athugavert við frv., væri ekki það, að lega landsins væri ekki ágæt, hallinn góður og mýrin vel fallin til ræktunar, heldur hitt, að ef leggja skyldi í slíkt, finnst mér réttast að notast við þá möguleika, sem fyrir hendi eru. Mér finnst athugavert að höggva þessar jarðir svo í sundur, að nokkur hætta yrði á því, að þeir, sem þar hafa búið, gætu ekki haldizt þar við, vegna þess að það, sem þeim yrði skilið eftir, yrði hvorki fugl né fiskur, og allar líkur til þess, að jarðirnar gætu ekki haldizt í sjálfstæðri ábúð. Þess vegna er ég flm. að brtt. á þskj. 408, ásamt hv. þm. Ak., og sú brtt. hefir komið fram við 3. umr. frv. Ég segi af minni hálfu, að ég hefi borið hana fram síðan málið var til 2. umr. af þeirri sérstöku ástæðu, að ég hefi hitt menn, er eiga þarna hlut að máli, eigendur sumra þeirra jarða í Ölfusi, sem nefndar eru í 1. gr. frv., og ég hefi orðið þess var, að þeir bera nokkurn kvíðboga fyrir því, ef þetta verður samþ., a. m. k. þeir, sem á annað borð eru nokkurn veginn staðfastir við bú sitt og jarðeign, og eiga á hættu að verða að fara þaðan, ef til lögboðins eignarnáms kynni að koma. Sá uggur, er þar kemur fram, kemur mér ekki ókunnuglega fyrir sjónir. Ég veit í raun réttri, að það er svo um marga þeirra manna, sem þykir vænt um sveitina sína, einkum bændur, sem þykir vænt um, að haldið yrði hlífiskildi yfir eignarrétti og ábúðarrétti á jörðum sínum og að þeir fái að vera þar óáreittir að öllu leyti, hvað sem í skerst. Hið sama stefnumið kemur fram hjá þessum mönnum sem það, er oft og einatt hefir komið fram hér á Alþ., sem sé að stefna eigi að því að laða fólk að sveitunum, fá það til að vera þar kyrrt og reyna að fjölga fólki í sveitum landsins með því að koma upp nýbýlum, ef ekki vill betur til. En til þess að fólk taki sér bólfestu í sveitunum, þarf réttur skilningur eða skynsemi að ráða, og allur er varinn góður og nauðsynlegur. Ég veit t. d. um einn bónda, sem segist vera búinn að taka nokkurn hluta af jörð sinni í sérrækt. Drengirnir hans eru uppkomnir, og það stendur til, að annar drengurinn hans taki við þessari sérrækt og noti sitt vinnuafl handa sér. Þetta er eðlileg framþróun.
Þess vegna vil ég fá frekari skýringu á þessu málefni, til þess ef verða mætti að unnt yrði að komast að kaupum á þessum jörðum eftir samkomulagi við eigendur, og í trausti þess, að ríkið og aðrir ráðamenn leiti hófanna um slíkt, þá vona ég, að þetta gangi á sem sanngjarnastan hátt, en ef það er ómögulegt, verður að leita til nauðungarúrræða, lögnámsins. En slíkt myndi bera vott um hinn mikla yfirdrottnunaranda gagnvart einstaklingnum, sem nú fer vaxandi, og ég veit, að Alþ. er vel skiljanlegt, með því að draga ályktanir alla leið frá hinum stærsta til hins smæsta kotbónda. Ég veit, að Alþ. skilur, hvers virði frelsið er og það, að geta verið óáreittur við sitt. En í því tilfelli, sem hér er um að ræða, gæti þetta, ef samþ. yrði, orðið til þess að draga nokkuð úr þeirri ást, sem menn bera til jarðar sinnar og sveitar, og er það þess vegna mjög varhugavert, enda hefir hv. landbn. borið fram brtt. um það, að fella burt meiri hl. af þeim jörðum, sem nefndar eru í l. gr., svo að ef ég hefi tekið rétt eftir, þá eru aðeins tvær jarðir eftir. Þetta er alveg rétt. Mér finnst að vísu alveg jafnhægt að leita hófanna hjá þeim mönnum, sem á hinum jörðunum búa, ef þeir vildu selja, og sjá, hvort ekki gætu tekizt samningar um slíkt. Þar með horfir málið öðruvísi við, nema eftir er hið sama „princip“. Ég ætla ekki að ræða sérstaklega um það, en ég vil taka það fram, að ég þykist vita, að í Ölfusinu sé nokkur ótti meðal bænda út af því, að gildir og góðir bændur kynnu að verða fyrir hrakningi, ef þetta verður samþ. Þetta á að vísu að vera gert til þess, að jarðirnar komi að almennum notum, en e. t. v. yrði eina afleiðingin sú, að fjöldabúskapur kæmi í staðinn og bæri hin gömlu sveitarfélög ofurliði, og ég veit, að hv. þm. skilja það, hvað hinir eldri bændur eiga við með því.
Ég álít réttara að láta brtt. á þskj. 408 koma til atkv., og láta ekki nema þegar brýn nauðsyn krefur koma til lögnáms. Því vil ég, að atkv. skeri úr um það áður en það fer lengra, hve brýn nauðsyn sé fyrir hendi.