18.04.1940
Efri deild: 41. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 615 í B-deild Alþingistíðinda. (1568)

101. mál, jarðir í Ölfusi

Frsm. (Páll Zóphóníasson):

Herra forseti! Hin síðustu ár hefir mönnum orðið það ljósara og ljósara, að nauðsyn bæri til þess, að hið opinbera hlutaðist til um, að fleiri býli gætu risið upp í hinum dreifðu byggðum landsins, svo að fleiri menn gætu lifað af landbúnaði, og atvinnuleysið í þorpunum, samfara aflabresti nú síðustu árin, hefir stutt að þessu. Upp af því hafa svo risið nýbýlal. og með þeim eða eftir þeim hefir ríkið stutt að því, að nýbýli kæmust upp. En reynslan hefir orðið við framkvæmd þessara mála, að þar, sem ekki hafa verið reist nýbýli á hluta úr eldri býlum og stuðzt við ræktað tún, eins og þar, sem jörðum hefir verið skipt í tvennt, eins og víða hefir verið gert, en menn hafa tekið óræktað land, sem frumbýlingarnir hyggjast að rækta sjálfir, þá hefir það sýnt sig, að þessir menn hafa átt fram undan erfiðan lífsróður fyrst um sinn og ræktun þessara landa hefir gengið nokkuð seint. Ríkisstj. skipaði nýlega svokallaða landnámsnefnd, og hefir sú nefnd lagt til, að land verði tekið eignarnámi austur í Ölfusi, ef ekki nást samningar um kaup, og ræktað fyrir nýbýlahverfi. Þetta hefir aldrei verið gert áður, þótt segja megi, að þurrkun landsins, sem kallað hefir verið Síbería, gæti verið undanfari þess, að þar yrðu reist nýbýli, og svo má líka segja, að í þorpunum, þar sem útgerðin hefir brugðizt og menn lifa að mestu leyti á landbúnaði, séu orðin nokkurskonar nýbýlahverfi, eins og á Eyrarbakka og Stokkseyri.

Það var haldinn sameiginlegur fundur um þetta mál hjá landbn. beggja d., og voru allir sammála um að bera frv. þetta fram eins og stjórnarráðið óskaði eftir að það væri, og nm. í þessari d. eru allir sammála um að mæla með. að frv. verði samþ. eins og það liggur fyrir nú.

Um leið og ég segi þetta fyrir n. hönd, vil ég segja frá mínu eigin brjósti, og þar tala ég sem einstaklingur, en hvorki sem flokksmaður né landbnm., að allt þetta og annað, sem gert hefir verið í nýbýlamálunum, er að vísu spor í rétta átt, en það nær ekki nema litlum hluta af þeim áfanga, sem menn vilja ná með þessu. Ég hefi þá sérstöðu, sem ég býst við, að ég standi alveg einn uppi með enn sem komið er, að ég held, að eigi á annað borð að halda áfram á þessari braut, að taka land á einum stað þetta árið og öðrum það næsta til að stofna nýbýlahverfi, þá muni það aldrei nema að litlu leyti leysa það vandamál, sem fyrir mönnum vakir að leysa, sem sé að það fólk, sem vill mynda sjálfstæð heimili í sveitum landsins, hafi aðstöðu til að geta það. Hin síðustu ár hafa að meðaltali um 300 hjón gift sig í sveitunum. Býli landsins eru þetta um 6200–6300 að jafnaði, það jafnar sig nokkurn veginn upp, að nýbýli myndast á einum stað og jarðir fara aftur í eyði ár og ár, svo talan veltur eitthvað á þessum tölum, og hefir gert það um áratugi. Nú þurfa þessi 300 hjón, sem gifta sig árlega, að fá jarðir, ef þau eiga að vera áfram í sveitinni, en það eru ekki nema 130–140 bændur á ári, sem deyja frá jörðum sínum, svo aðeins tæpur helmingur þessara hjóna getur fengið jarðir, þótt þau sitji um hverja þá jörð, sem losnar. Þá er ekki um annað fyrir þau að gera en annaðhvort alls ekki að hugsa um að mynda sjálfstæðan atvinnurekstur í sveit, eða fara í kaupstað og reyna að heyja sína lífsbaráttu þar, þótt þau hefðu miklu heldur kosið að vera kyrr í sveit. Ég held, að allt svona lagað, eins og þetta frv., sé spor í áttina, en takmarkið næst ekki fyrr en komin eru á allsherjarl. um heimild til að taka land eignarnámi fyrir býli, hvar sem er á landinu, ef á þarf að halda. Þetta vildi ég láta koma fram sem mína skoðun. Ég stend e. t. v. einn með hana hér á hv. Alþingi, en það getur breytzt. Þegar ég stakk upp á því 1912, að ríkið færi að kaupa jarðir, vildi enginn á það hlusta, og þegar ég minntist á það 1915, sem nú er komið hér inn í 17. gr. jarðræktarlaganna, þá vildi heldur enginn sjá það eða heyra. Nú viðurkenna allir, að þetta sé rétt. Svo þótt þetta frv. sé ekki nema lítið spor í þá átt að koma í veg fyrir, að fólkið flosni upp úr sveitunum og unga fólkið geti stundað þar sjálfstæðan búrekstur, þegar það hefir aldur og getu til þess, þá er það spá mín, að næstu ár verði haldið áfram að koma löggjöfinni í það horf, að í stað þess, að fólkið hrökklist úr sveitunum, þá komi almenn eignarnámsl., sem skapi möguleika fyrir því, að fólkið geti verið áfram í sveitunum, þar sem það vill, svo mikill hluti af fólksfjölgun sveitanna neyddist ekki til að flytja til bæjanna, eins og nú er.