11.04.1940
Neðri deild: 33. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 637 í B-deild Alþingistíðinda. (1639)

31. mál, tollskrá o. fl.

*Emil Jónsson:

Þegar þessi l. voru afgr. á síðasta þingi, fyrir aðeins 3 mán., þá höfðu komið fram við þau ýmsar aths. og till. til breytinga, en þeim var öllum vísað á bug með þeirri röksemdafærslu, að l. yrðu tekin til endurskoðunar að nýju eftir eitt ár, þegar séð væri, hvernig þau hefðu reynzt í framkvæmdinni. Ég get bent á mörg atriði, þar sem tollakjörum iðnaðarins er komið fyrir á þann veg, að illa er við unandi. Ég skal ekki fara mikið út í þetta, vegna þess að flestir, sem við þessi tollakjör eiga að búa, virðast hafa sætt sig við þá hugsun, að l. yrðu athuguð eftir að þetta eina ár væri liðið. Þegar svo reynsla væri komin á þessi l., hafa þeir hugsað sér að koma með rökstuddar till. til bóta. Í þessu eina tilfelli er útlend vara tolluð meira en innlend, og er það mjög ósanngjarnt. Ég hygg, þó að till. fjhn. nái fram að ganga, þá verði áhöld um að tollarnir verða ekki hærri á útlendri vöru en þeirri innlendu, en það munar ekki miklu. Fer það nokkuð eftir því, hvað viðurinn er þungur í sér; í öðru tilfellinu er hann tollaður eftir rúmmáli, en í hinu eftir þyngd, og þetta gæti verið nægilegt til að valda mismuninum. Mér fyndist rétt, að þessi vara yrði látin bíða, þar til tollskráin yrði endurskoðuð og lagfærð eftir hinn ákveðna tíma. Eftir minni persónulegu skoðun hefi ég mesta tilhneigingu til að vera með till hv. 6. þm. Reykv. um að fella niður tolla á þeirri framleiðslu, sem um er að ræða. Ef hæstv. fjmrh. álítur fært, að ríkissjóður gæfi þetta eftir af þeirri ástæðu, að upphæðin yrði svo lág, tel ég mjög æskilegt, að þessi brtt. nái fram að ganga. En ef svo væri ekki, gæti sjávarútvegurinn sætt sig við að bíða með lausn þessa vandamáls, þar til endurskoðun fer fram á tollskránni. Ég veit ekki nákvæmlega um, hve mikinn toll hér er um að ræða á hverjum kassa, en held, að hann sé 10 aurar. Nú eru mörg kg. í hverjum kassa, svo tiltölulega fá prósent af fiskverðinu færu í þennan toll. Þó að segja megi, að „safnist, þegar saman kemur“, er hér ekki um að ræða upphæð, sem hefir verulegt gildi í þessu sambandi.

Ég vildi þess vegna, ef hv. þm. samþykkja ekki till. hv. 6. þm. Reykv., leggja til, að þessi breyting verði látin bíða, þar til almenn endurskoðun fer fram á tollskránni.