07.03.1940
Efri deild: 12. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 657 í B-deild Alþingistíðinda. (1685)
46. mál, gjaldeyrisverzlun o. fl.
*Flm. (Magnús Jónsson):
Eftir þessa ræðu hæstv. ráðh., þá sýnist vera orðið styttra á milli okkar en í byrjun. Hann orðaði það nú enn skýrar, að hann teldi eðlilegt, að þessir aðilar, fulltrúar fyrir kaupmenn og samvinnufélög, kæmu sér saman um skiptingu varanna með aðstoð oddamanns. Hvað er það, sem frv. gengur út á, annað en þetta? Hæstv. ráðh. hélt því fram, að oddamaðurinn ætti að vera úr gjaldeyris- og innflutningsnefnd. Það má segja, að það geti verið eðlilegt. Hann nefndi í fyrri ræðu sinni formann nefndarinnar. Það má segja, ef hann er allt í einu orðinn svo fullur vantrausts á ríkisstj., að honum finnist allt betra en það, sem hún kemur sér saman um, að þetta geti verið gott fyrirkomulag. Ég hefi nú þá trú, að ríkisstj. myndi gera sitt bezta til þess að velja þarna sem hæfastan mann. ... Og ég veit ekki, hvað það er, sem því gæti valdið, ef þeir hefðu nú t. d. komizt svo langt, að það væri um tvo ágætismenn að ræða, sem hvorugum væri hægt að hafa á móti, því að ég get ekki betur séð en að þeir geti afgert með atkvgr., hvor maðurinn er valinn. Þegar ráðh. hafa komið sér saman um eitthvað, þá trúi ég ekki fyrr en ég tek á því, að þeir geti það ekki. Ég hygg, að sannleikurinn sé sá, að yfirleitt komi ráðh. sér saman um afgreiðslu allra stærri mála, og þeir hafi þess vegna allra manna mesta æfingu í því að koma sér saman um skipun manna og um ráðstafanir í fjölda mörgum efnum. Ég veit, að hæstv. viðskmrh. þekkir vel, að þeir koma sér vel saman, og ef einhver ráðh. vill ekki eitthvað, sem hinir vilja, þá hefir hann fyrir hendi það ráð, að fara úr ríkisstj. En ég get ekki trúað, að hæstv. ríkisstj. geti ekki fundið mann, sem allir ráðh. geti treyst til að miðla réttilega málum í þessum efnum. Ég vildi, að hv. Alþ. vildi nú setja l. um þetta og setja þennan prófstein á hæstv. ríkisstj. Ég trúi ekki öðru en að hún stæðist það próf.
Bankastjórarnir koma sér yfirleitt saman um þær ráðstafanir, sem þeir gera. Og þetta er svo algengt í mannlegu félagi, að koma sér saman, og þó hygg ég, að fáir séu eins æfðir í því eins og hæstv. ráðh.
Hæstv. viðskmrh. var hræddur um það, að það yrði niðurstaðan af þessum l., ef samþ. verða, að enginn teldi sig bera ábyrgð á gerðum gjaldeyris- og innflutningsnefndar. Og til hvers myndi það þá leiða? Ég sé ekki mjög marga möguleika í þessu efni. Annaðhvort útleiddust þessi mál í þessu hræðilega ábyrgðarleysi þannig, að friður yrði um málin og þeir kæmu sér saman í n. Eða ef allt færi í ófrið, skyldi ég verða fyrstur manna til þess að viðurkenna, að það traust, sem ég nú sýni þeim, hefði verið oftraust á þessum mönnum, og Alþ. yrði þá að setja á það nýja skipun, ef ríkisstj. væri þá ekki búin að því sjálf, áður en til kasta þingsins kæmi. Nei, ég er ekki svo hræddur við þetta ábyrgðarleysi. Það eru öll tök um þessi mál hjá ríkisstj. og Alþ.
Mér þótti mjög vænt um að heyra þá yfirlýsingu hjá hæstv. viðskmrh., að fyrir honum vekti og hefði ekki vakað annað en að þeir menn, sem eiga að miðla þessum vörum milli manna, ættu að hafa það sjónarmið, að neytendur í landinu væru sem allra frjálsastir um að verzla hvar sem þeir vildu. Þetta er að mínu áliti alveg laukrétt sjónarmið, þ. e. a. s., það á að miðla vörunum þannig, að þær verzlanir, sem í landinu eru, þ. e. a. s. stofnanir, sem vörudreifingu hafa með höndum, hafi nokkurn veginn álíka miklu úr að spila. Ég hef þess vegna að svo komnu máli leyft mér að hafa bezta traust á, að okkur takist að leysa þetta mál hér á þingi. Og ég er viss um, að virðing Alþingis myndi við það vaxa, ef hv. þm. gætu fundið sanngjarna lausn, sem menn vildu una við í þessum málum.