22.04.1940
Efri deild: 46. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 664 í B-deild Alþingistíðinda. (1696)
46. mál, gjaldeyrisverzlun o. fl.
Frsm. (Bernharð Stefánsson):
Ég vil vekja athygli á því, að við uppprentun frv. hefir byrjun 1. gr. fallið niður, eins og hún á að vera og var sannanlega samþ. hér í dag við síðustu umr., samkv. brtt. á þskj. 536. Það er nauðsynlegt, að þetta standi eins og samþ. var og að tilvísunin til 3. gr. laganna haldist. Mætti e. t.v. laga þetta aftur í prentun.