22.04.1940
Efri deild: 46. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 664 í B-deild Alþingistíðinda. (1699)
46. mál, gjaldeyrisverzlun o. fl.
*Magnús Jónsson:
Út af orðum hv. 10. landsk. um skilgreining orðanna „skófatnaður“ og .,byggingarefni“ vil ég taka fram, að í n. var alls ekki um það rætt, hve víðtækir þeir vöruflokkar gætu verið. Í verzlunarmáli býst ég við, að orðið byggingarvörur geti verið mjög víðtækt, a. m. k. hafa þeir, sem með þær verzla, margt á boðstólum, en skófatnaður mun geta átt við bæði tilbúna skó og efni í þá. Nú er ekki líklegt, að kappið verði svo mikið um, hver eigi að úthluta þessum leyfum, að mikill ágreiningur þurfi að verða um skilning orðanna. En annars hlýtur það að koma undir úrskurð stjórnarráðs, hvað eigi að teljast til hvors flokks um sig. Ég tek fram, að ég vil ekki, að neinum einhliða skilningi á því sé haldið fram hér í umr. um þetta.