23.04.1940
Neðri deild: 49. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 666 í B-deild Alþingistíðinda. (1712)

46. mál, gjaldeyrisverzlun o. fl.

*Ásgeir Ásgeirsson:

Ég hefi borið fram brtt. við þetta frv., sem ekki er búið að útbýta hér í d. enn. Hún er við 2. málsgr. 1. gr. og er á þá leið, að í stað orðanna „Ennfremur .... formaður nefndarinnar“ í upphafi 2. efnismálsgr. komi: Ennfremur skal ríkisstj. skipa þriggja manna nefnd, einn eftir tilnefningu Sambands íslenzkra samvinnufélaga, annan eftir tilnefningu Verzlunarráðs Íslands og hinn þriðja eftir tilnefningu Alþýðusambands Íslands. Nefndin kýs sér formann.

Þessar þrjár stofnanir svara að ýmsu leyti til þeirra þriggja flokka, sem nú hafa samstarf um ríkisstj., og Alþýðusamband Íslands hefir líka haft aðila í gjaldeyrisn., og er lítt skiljanlegt, hver nauðsyn er á að útrýma fulltrúa Alþýðusambands Íslands eða Alþfl. úr þessari vörumiðlunarn., sem nú á að fara að setja upp. Án þess að þessi till. nái samþykki verður ekki samkomulag við okkur Alþfl.-menn um þessa breyt. á l. um gjaldeyrisverzlun. Okkur hefir skilizt, að það myndi verða reynt að fullnægja óskum Alþfl. í sambandi við þær breyt., sem gerðar væru á l. þessum.