23.04.1940
Neðri deild: 49. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 668 í B-deild Alþingistíðinda. (1719)
46. mál, gjaldeyrisverzlun o. fl.
*Einar Olgeirsson:
Herra forseti! Ég heyrði það á þeim umr., sem fram hafa farið um þetta mál, að þm. ræða alls ekki um málið, sem fyrir liggur, enda er það varla von, því það er búið að gera málið svo ómerkilegt með þessari breyt. á l. um gjaldeyrisverzlun, að það nálgast alls ekki það að vera lausn á verzlunarmálunum. Það er í engu sambandi við verzlunarmálin, nema að því leyti, að það á að setja á stofn tvær nýjar n., sem eru alveg jafnóþarfar eins og innflutningsn., sem fyrir er. Það er afareðlilegt, eins og málið liggur nú fyrir, að þm. ræði um, hvaða flokkar eigi að fá fulltrúa í n. Í stað þess að fá framgengt miklu réttlætismáli, sem Sjálfstfl. hefir barizt fyrir, og er búinn að standa í ógurlegri baráttu á stjórnmálasviðinu til þess að koma fram réttlætismálunum, kemur nú í ljós árangurinn af þessari hetjulegu baráttu Sjálfstfl., sem er tvær nýjar n. til viðbótar við þá, sem fyrir er. Sjálfstfl. hefir lýst því yfir, að hann væri alveg mótsnúinn ranglæti og spillingu í þjóðfélaginu.
Hér er brugðið út af þeirri venju, sem hefir viðgengizt hingað til. Slíkar n. sem þessi er hafa venjulega verið skipaðar samkv. tilnefningu þriggja stærstu þingflokkanna, en nú virðist eiga að breyta út af þeirri venju. Ummæli hv. þm. V.-Ísf. geta skýrt þetta að nokkru leyti. Þessi hv. þm. segir, að Alþfl. hafi boðið Sjálfstfl. að koma þessu í gegn móti vilja Framsfl., og þá var það fyrst orðið algerlega öruggt, að hægt yrði að koma þessu máli mjög fljótlega í gegn. En þá fór Sjálfstfl. að semja við Framsókn, Sjálfstfl. hætti að berjast fyrir réttlætismálunum, og má af því sjá, hver alvara hefir legið þar á bak við, og afleiðingin af þessu öllu er sú, að nú á að fara að bæta við tveim nýjum n., sem eru óþarfar með öllu. Það er alveg eðlilegt, að Sjálfstfl. vilji fá sinn fulltrúa í n., en ég sé bara ekki, hvers vegna Alþ. á að fara að samþ. slíkt, því að Alþ. er nú búið að fá nóg af því að setja upp nýjar n. Mér finnst, að þar sem tveir stjórnmálaflokkar reyna að bræða sig saman, ættu þeir að vinna það nokkurn veginn kauplaust, eða setja ráðh. í það og láta þá hafa þetta sem aukastarf, eða þá, ef það þætti ógerlegt, mætti athuga, hvort ekki væri fært að láta Samband íslenzkra samvinnufélaga taka að sér að bræða saman hagsmuni þessara tveggja flokka. Það, sem Alþ. ætti að gera, er að leggja innflutningsn. niður og láta menn fá að reyna, hvernig þá gengi að skapa heilbrigt skipulag í þessum málum.
Annars virðist það einkennilegt og fjarri allri heilbrigðri skynsemi, þegar menn eru hræddir um, að vöruvöntun verði í landinu, að þá skuli vera þrjár n. launaðar úr ríkissjóði til þess að hafa eftirlit með, að menn fái að flytja vörur inn í landið. Það virðist, vægast sagt, vera svo ósamrýmanlegt skipulag, að það er makalaust, að Alþ. skuli þessa síðustu daga, sem það situr að þessu sinni, gera enn fleiri tilraunir en það hefir áður gert til þess að afstýra því, að menn geti fengið að flytja vörur inn í landið, og ættu hv. þm. að hugsa sig vel um, hvað þetta hlýtur að vera hlægilegt. Enginn þm. Sjálfstfl. hefir nú staðið upp til að berjast fyrir réttlætismálunum, sem þeir hafa talað mikið um, og mér þætti gaman, ef einhver vildi segja, í hvaða sambandi þetta frv. væri við þau; ég býst við, að það gæti verið fróðlegt fyrir kjósendur Sjálfstfl. hér í Reykjavík. Ég held, að hið réttasta væri að leggja allar þessar n. niður, og ég mun fyrir mitt leyti greiða atkv. móti frv.