15.03.1940
Efri deild: 18. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 672 í B-deild Alþingistíðinda. (1732)

70. mál, verðlagsuppbót á laun embættismanna og starfsmanna ríkisins og ríkisstofnana

*Frsm. (Magnús Jónsson):

Ég vildi leiðrétta misskilning, sem hér kom fram. Það kann að vera, að ég hafi talað óskýrt, en ég vildi ekki, að þessi misskilningur kæmi fram í þingtíðindunum. Ég hélt því ekki fram, að menn, sem hefðu fleiri störf en eitt, ættu að fá uppbót fyrir hvert þeirra um sig og geta þannig komizt í hærri flokk en annars, heldur sagði ég, að þetta yrði að athuga nánar, og ég taldi það vafamál, hvort ætti að bæta slík starfslaun upp sérstaklega. Ég nefndi sem dæmi þingfararkaup og laun fyrir störf í mþn. Ég minntist á, að það gæti verið erfitt í framkvæmd að reikna öll aukastörf þannig, og að því er snertir þingfararkaupið t. d. tel ég, að um geti verið að ræða aðferðarörðugleika, að sjá, í hvaða flokki maðurinn lendir, ef taka á það til greina með öðrum launum.

Þá gerði hv. 1. þm. N.-M. tvær aths. Önnur var sú, að hann taldi vafamál, hvort rétt væri að láta uppbótina ná upp úr, og varpaði fram þeirri spurningu, hvort ekki væri réttara að stanza t. d. við 8–9 þús. kr. laun, svo að ef maður hefði hærri laun, þá væru þau ekki bætt upp. Það er vitanlegt, að ef aukastörf eru reiknuð með, komast ýmsir upp fyrir þetta mark, en örfáir embættismenn eða starfsmenn ríkisins hafa hærri föst laun en þetta. Launin hjá ríkinu eru nú ekki hærri en þetta. Það er naumast til það ríki í veröldinni, sem hafi jafnari laun en íslenzka ríkið. Og mér finnst sá megingalli vera á því að stanza með uppbótina við ákveðið launamark, að með því er verið að gera annað en tilgangurinn er með þessari löggjöf. Tilgangurinn er ekki sá, að jafna laun manna, heldur að bæta upp að nokkru leyti þá rýrnun á gjaldeyri, sem launin eru borguð í. Verðgildi krónunnar er nú miklu minna en það var áður, svo að nú er hún ekki nema 60–70 aurar frá því sem áður var. Þess vegna er nauðsynlegt að bæta launin upp, svo að þau verði eins og áður, en til þess eru gömlu lögin þröskuldur í veginum. Þegar dýrtíðaruppbótin var sem hæst, höfðu embættismenn ríkisins allir sömu laun að henni meðtaldri. Eitt árið komst hún upp í 137%. Ég var þá nýkominn til bæjarins sem láglaunaður embættismaður, en hafði þó að meðtaldri dýrtíðaruppbótinni sömu laun og prófessorar og jafnvel biskupinn. Við námum allir staðar við sama hámarkið. Ef nú þeir lægstlaunuðu eiga að fara að nálgast þá, sem hærri hafa launin, þá er verið að rugla því launakerfi, sem fyrir er í landinu. Hv. þm. skaut því til n., hvort ekki væri betra að hafa flokkana fleiri, og er sjálfsagt að athuga það. En í fljótu bragði virðist svo, að eftir því sem flokkarnir yrðu fleiri, því flóknari yrðu l. í framkvæmd, og er rétt að mæla með gildandi ákvæðum um þessi efni.

Ég hefi nú ekki með höndum gögn, sem sýna, hvað laun geta komizt hátt. En ef litið er á föstu launin, þá eru eftir eldri launalögunum engin laun hærri en 10 þús. kr. Hæstu ríkislaunin eru ráðherralaunin, og ég held, að fáum muni detta í hug að kalla íslenzku ráðh. hálaunamenn. Ef nokkuð er vanvirða fyrir ríkið, þá er það, hvernig það launar ráðh. sínum, svo að þeim er ómögulegt að lifa af þeim launum eingöngu. Þó er ekki hægt að segja, að starf þeirra sé rólegt og þeim sé frjálst að haga sínum gerðum eftir eigin geðþótta. Sama má segja um fleiri störf, sem alls ekki eru borguð sem skyldi. En eigi að síður heyrist oft á opinberum vettvangi, að ýmsir starfsmenn ríkisins taki laun sín fyrir lítið, og þó skal ég ábyrgjast, að þessir menn hafa nóg að gera. Ég er eitt af þessum sníkjudýrum í embættum ríkisins, en mér er óhætt að fullyrða, að við fáum ekki að sofa við starf okkar, svo óhætt er að bæta launin upp þess vegna.