16.04.1940
Neðri deild: 40. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 681 í B-deild Alþingistíðinda. (1757)

70. mál, verðlagsuppbót á laun embættismanna og starfsmanna ríkisins og ríkisstofnana

*Fjmrh. (Jakob Möller):

Ég vil biðja afsökunar á því, að ég á illt með að tala, vegna þess að ég hefi orðið slæmur í hálsi, en vildi hinsvegar ekki láta þessa umr. fara framhjá án þess að láta skoðun mína í ljós á þessu máli.

Því aðeins var þetta frv. lagt fyrir þingið eins og það var úr garði gert, að það var álitið það eina, sem væri í samræmi við þingviljann í þessu máli, eins og hann kom fram á síðasta þingi, þar sem stj. var heimilað að greiða embættismönnum og starfsmönnum ríkisins eftir svipuðum reglum og átti að greiða til verkamanna og sjómanna samkvæmt gengislögunum. Það kemur þess vegna mjög á óvart, að fjhn. hefir þrátt fyrir þennan þingvilja breytt frá honum í svo verulegum atriðum sem gert er í till. n., sem hér liggja fyrir. Það liggur til dæmis í augum uppi, að þegar ákveðin var verðlagsuppbót til verkamanna, þá hefði mátt setja um það samskonar reglur eins og nú er lagt til, að hér verði settar samkv. till. n., til dæmis með menn, sem ekki hefðu fyrir öðrum en sjálfum sér að sjá, að þeir skyldu ekki fá dýrtíðaruppbót. Ef þetta hefði verið gert, þá hefði málið horft öðruvísi við. Það er augljóst, að þetta myndi valda óánægju, ef farið væri að setja þessi ákvæði hér, auk þess sem það er augljóst, að sá tilgangur, sem meiri hl. n. hefir ætlað að ná með þessum till., er að meira eða minna leyti fyrir borð borinn með öðrum till. n. sjálfrar. Það er mælt svo fyrir í einni brtt. n., að þeir, sem hafi 360 kr. í laun og þar yfir og séu einhleypir, skuli enga dýrtíðaruppbót fá. En það er síður en svo minni ástæða til að gera mun á fjölskyldumönnum og einhleypum mönnum fyrir neðan þetta launamark. Það er til dæmis augljóst mál, að einhleypur maður með 360 króna laun á mánuði er miklu betur settur en fjölskyldumaður með 2 börn, sem hefir 400 krónur á mánuði, þótt hann fái 200 krónur á mánuði með börnunum. Þar að auki er spurning um það, hvað á að vera höfuðreglan í þessu efni.

Nú er það svo, að starfsmönnum ríkisins er skipt í launaflokka eftir því, hvað störfin eru talin mikilsverð. Mér finnst ekkert réttlæti í því, ef rétt er talið að greiða uppbót á lægri launin, sem greidd eru fyrir hin minna áríðandi störf, að þá sé ekki einnig greidd uppbót á störfin, sem meira áríðandi eru talin og þess vegna betur launuð. Mér finnst sama siðferðislega skylda vera til þess að greiða hlutfallslega uppbót á öll þessi laun.

Þá vil ég og benda á eina hættu, sem af því gæti stafað að gera mun á uppbót á laun einhleypra manna og fjölskyldumanna, einkum með tilliti til þess frv., sem hér á að ræða á eftir um uppbót á laun starfsmanna í verzlunum og skrifstofum. Það er augljóst, að ef farið er inn á þessa braut, þá muni geta komið að því, að fjölskyldumenn eigi erfiðara með að afla sér vinnu en þeir, sem einhleypir eru.

Um slík mál sem þessi varðar það miklu, að fullt réttlæti sé sýnt starfsmönnunum í heild, en það get ég ekki séð, að sé gert með till., sem hér liggja fyrir, og get ég því ekki mælt með því, að þær verði samþ., og mun greiða atkv. á móti þeim.