18.04.1940
Neðri deild: 44. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 713 í B-deild Alþingistíðinda. (1789)
70. mál, verðlagsuppbót á laun embættismanna og starfsmanna ríkisins og ríkisstofnana
Skúli Guðmundsson:
Ég hefi engu haldið fram um það, að hæstv. fjmrh. bæri einn ábyrgð á flutningi þessa máls. En mér var hitt kunnugt, að ríkisstj. hafði vikið af sér þeim vanda, að ákveða um þessi efni með reglugerð. Mér er ókunnugt um, að til atkvæðagreiðslu hafi komið um þetta í ríkisstj., og býst ekki við, að neitt slíkt hafi átt sér stað. — Út af orðum hv. þm. A.- Húnv. (JPálm) skal ég taka fram, að það var misminni, að allir ráðh., sem sæti eiga í d., hafi greitt atkv. móti brtt. n. Hæstv. viðskmrh. greiddi ekki atkv. móti því að takmarka dýrtíðaruppbótina við ákveðið launahámark.