22.04.1940
Efri deild: 44. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 715 í B-deild Alþingistíðinda. (1798)
70. mál, verðlagsuppbót á laun embættismanna og starfsmanna ríkisins og ríkisstofnana
*Jónas Jónsson:
Þetta getur vel verið rétt, sem hv. 1. þm. Eyf. sagði, að þetta niðurlag gr. geti ekki verið eins og það er. En ég held samt, að það megi ekki verða eins og hann leggur til, að það verði.
Ég ætla ekki að fara út í að ræða ýtarlega um þetta efni. En ég vil aðeins minna á það, að í fjárl., sem eru undirbúin, bæði fyrir 1940 og 1941, þar er gert ráð fyrir miklu meiri niðurfellingu gjalda en nokkru sinni áður hefir verið gert ráð fyrir af því, sem þar er áætlað, ef erfiðleikar í landinu krefjast. Ennfremur hefir síðan þetta var ákveðið, útlitið stórlega versnað um atvinnuvegina í landinu, þar sem svo lítur út með afurðasöluna, að Norðurlönd virðast vera algerlega lokuð, í viðbót við Mið-Evrópu. Við getum því ekki búizt við góðu ári fyrir framleiðsluna í landinu. Og ég held, að í ljósi þess megi segja, að það séu ekki neinar líkur til þess, að þjóðin hafi neina peninga aflögu, hvorki á þessu eða næsta ári, til þess að greiða há laun; heldur verði menn nú að lifa upp á gamla móðinn. Ég held því, að bezt sé að fella niður till. n., með tilliti til þess, að þeir menn, sem fá laun af opinberu fé, verði að sætta sig við að fá minna heldur en ef hefði verið góðæri.