22.04.1940
Efri deild: 44. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 720 í B-deild Alþingistíðinda. (1810)

70. mál, verðlagsuppbót á laun embættismanna og starfsmanna ríkisins og ríkisstofnana

*Frsm. (Magnús Jónsson):

Ég vil aðeins benda á, að smíðagallarnir á 2. gr. frv. eru svo miklir, að hækki dýrtíðaruppbótin dálítið frá því, sem hún er nú, þá getur svo farið, að allir embættismenn þjóðarinnar hafi sömu laun, en það hljóta allir að sjá, hversu ótækt það er. Og það er alveg sama, hvernig frv. þessu er velt fyrir sér, ákvæði þess hljóta alltaf að rekast á, ef ekki verður úr bætt. Fjmrn. myndi því óhjákvæmilega lenda í vandræðum við framkvæmd laganna. Þetta vænti ég, að hv. dm. athugi og samþ. brtt. fjhn., sem er eina leiðin út úr ógöngunum.