22.04.1940
Neðri deild: 47. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 731 í B-deild Alþingistíðinda. (1825)
70. mál, verðlagsuppbót á laun embættismanna og starfsmanna ríkisins og ríkisstofnana
*Thor Thors:
Ég ætla ekki að fara langt út í þetta mál í heild, en vegna þeirra orðaskipta, er fram hafa farið milli flokksbræðra minna. hv. þm. V.-Sk. og hv. þm. A.-Húnv., ætla ég að segja nokkur orð.
Hv. þm. A.-Húnv. sagði, að hv. þm. V.-Sk. talaði í þessu máli sem fulltrúi launastéttarinnar eingöngu, en ekki sem fulltrúi þjóðarinnar. Þetta var mjög ómaklega mælt hjá þessum ágæta vini mínum, því að hv. þm. A.-Húnv. verður að gera sér ljóst, að hér er um verulegt stefnumál að ræða, sem byggist ekki á því, að hér sé um hagsmuni starfsmanna ríkisins að ræða. Það, sem hér er um að ræða, er þetta: Ætlar ríkið sem stærsti atvinnurekandinn í þjóðfélaginu að skapa sínum starfsmönnum verri rétt en Alþ. hefir ákveðið öðrum starfsmönnum? Alþ. hefir í l. um gengisskráningu ákveðið, að vissir starfsmenn, þ. e. sjómenn, verkamenn, iðnaðarmenn og verksmiðjufólk, skuli fá nokkrar launabætur í samræmi við vaxandi dýrtíð. Það hefir ennfremur leitazt við að skapa bændum nokkrar launauppbætur með því að taka út úr gengisskráningarlögunum takmörkun á verði innlendra afurða. Þetta hefir þegar leitt til þess, að mjólk og kjöt hafa hækkað í verði á innlendum markaði. Þetta var rétt stefna frá því sjónarmiði, að allar stéttir eigi að hafa nokkra leiðréttingu sinna mála. Eiga starfsmenn ríkisins ekki að vera sama réttar aðnjótandi og Alþ. hefir viljað veita öðrum? Í launastétt ríkisins eru margir, sem hafa svo lág laun, að þeir verða alla tíð í bökkum að berjast.
Mér er vel kunnugt um, að lífskjör fólks í sveit eru ekki sambærileg nema að litlu leyti við það, sem kaupstaðarbúar veita sér. Því er ekki að neita, að í kaupstöðunum eru gerðar aðrar kröfur af öllum almenningi til lífskjara en menn sætta sig við í sveit. En hinu má ekki gleyma, að sá bóndi, sem á sitt bú, fær flestar þær afurðir, sem kaupstaðarbúinn verður að kaupa dýru verði fyrir miklu lægra verð af eigin framleiðslu. Það er því sanngjarnt að bæta starfsfólki ríkisins að nokkru vaxandi dýrtíð. En svo er þetta að öðru leyti stefnumál: Ætlar ríkið yfirleitt að skammta starfsmönnum sínum slík laun, að allir, sem eiga annars úrkosti, fari ekki í þjónustu þess? Eiga störf hjá ríkinu að vera nauðalending þeirra, sem hvergi annarstaðar geta veitt sér og sínum lífsframfæri? Það virðist stefna í þessa átt. Nú þegar er mikið ósamræmi milli þess, hvernig ríkið launar sína starfsmenn og einstakir atvinnurekendur. Ef þetta ósamræmi heldur áfram og ekkert er gert til þess að draga úr því, verður afleiðingin sú, að einungis lélegustu starfsmennirnir lenda í þjónustu ríkisins, hinir leita í aðrar áttir.
Ég vildi aðeins benda á þessi sjónarmið, svo að minn ágæti flokksbróðir, hv. þm. A.-Húnv., gerði sér ljóst, að í þessu máli er ekki aðeins um fjárhagsatriði að ræða, heldur mjög ákveðið sjónarmið þess ríkisvalds, sem vill tryggja sér færa starfsmenn.
Hv. þm. V.-Sk. benti á, að í Ed. hefði sú breyting verið gerð á frv. um heimild til þess að lækka ýmsar greiðslur skv. lögum, að það væri skilyrði fyrir heimildinni, að fyrirsjáanlegt væri, að tekjur ríkissjóðs bregðist verulega frá því, sem fjárl. gera ráð fyrir. Hér finnst mér af mikilli sanngirni mælt, og vænti ég, að sama sanngirni nái einnig til þessa máls. Vil ég því leyfa mér að bera fram skriflega brtt. við brtt. á þskj. 545,2, en þar segir svo: „Ríkisstjórninni er heimilt, ef fjárhagsörðugleikar vaxa, að fella niður verðlagsuppbót samkvæmt leigum þessum að nokkru eða öllu leyti.“ Ég vil leggja það til, að á eftir orðunum: „fjárhagsörðugleikar vaxa“ komi: verulega; er þá farið inn á sömu braut og Ed. hefir farið og skýrt hefir verið af hv. þm. V.-Sk., að örðugleikarnir verða að vera verulegir, til þess að gripið verði til þessara breytinga, og ég hygg, að stuðningsmenn stj. geti treyst því, að hún sýni í öllu sanngirni um framkvæmd slíkra heimilda, ef til kemur.