22.04.1940
Neðri deild: 47. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 733 í B-deild Alþingistíðinda. (1829)

70. mál, verðlagsuppbót á laun embættismanna og starfsmanna ríkisins og ríkisstofnana

*Jón Pálmason:

Það stendur svo illa á, að ég er búinn með minn ræðutíma. Ég vildi taka það fram, að mér þykir það mjög leiðinlegt, að einmitt úr hópi vina minna og flokksbræðra skuli vera tekin upp vörn fyrir þær stefnur, sem ég er alveg ósamþykkur. Hv. þm. Snæf. talaði um, að það væri mjög óviðeigandi, að ríkið hefði frekar atvinnurekstur en aðrir, ef það ætlaði sér ekki að borga neina verðlagsuppbót þrátt fyrir aukna dýrtið. Á síðasta þingi var ákveðið að hækka skyldi kaup þeirra manna, sem stunda opinbera atvinnu. En ég álít, að þarna verði of langt gengið, samkvæmt því sem ákveðið var með gengislögunum, svo að það er ekki mínum áhrifum eða mínu atkv. að kenna, hvernig frá þeim ákvæðum er gengið. Viðvíkjandi því, að það hafi verið hækkað verð á mjólk og kjöti til hagsmuna fyrir okkur bændur, þá hafa bændur, eftir því sem ég bezt veit, ekki fengið einum eyri hærra verð fyrir mjólk sinu en þeir fengu áður en stríðið byrjaði.

Að gerðar séu hærri kröfur til lífsins í kaupstöðum en sveitum er vitanlega rétt. En þegar fjárhagsástandið horfir til vandræða, má gera kröfu til þess, að kaupstaðarmenn eins og aðrir sníði sér stakk eftir vexti á þessum erfiðu tímum. Viðvíkjandi því, að stefnt sé í þá átt, að ríkið fái verri starfsmenn en áður, verð ég að segja það, að ríkið fær meiri möguleika til þess að njóta hinna beztu starfskrafta, sem völ er á.