02.04.1940
Neðri deild: 28. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 747 í B-deild Alþingistíðinda. (1864)
16. mál, vegalög
Forseti (JörB):
Ég hefi hugsað mér viðvíkjandi atkvgr. að fara þá leið, sem hv. þm. V.-Sk. drap á, að bera upp brtt. n. í einu lagi. Við 3. umr. mætti bera fram brtt. um þau atriði frumv., sem felld eru niður eftir till. n., verði þær samþykktar. En ef hv. flm. óskaði — sem mér er ekki grunlaust um — að bera upp einhverja stafliði, sem felast í hans frv., nú þegar við þá brtt., sem n. hefir gert, þá vil ég ekki neita honum um það. Því að um svona atriði er ekki hægt að ganga öðruvísi til atkv. en nokkuð sundurliðað, vegna þess hvernig málinu er háttað.