12.04.1940
Neðri deild: 34. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 756 í B-deild Alþingistíðinda. (1880)
16. mál, vegalög
*Þorsteinn Briem:
Við höfum nú heyrt hinar hörðu áskoranir frá hv. frsm. samgmn. um að taka brtt. þær, sem fram eru komnar við frv., aftur. Það var fyrir óskir hans, að ég tók aftur brtt., er ég átti við frv. þetta við 2. umr., og það gerði ég í trausti þess, að n. athugaði sig betur og kæmist að þeirri niðurstöðu, að hún hefði ekki gert alveg rétt í till. sínum né farið að öllu eftir orðum sínum í nál., þar sem hún lýsir því yfir, að hún vilji láta hvert hérað hafa sitt. Þetta mun hún og hafa gert fyrir öll þau héruð, sem till. voru bornar fram fyrir, nema mitt hérað. Ég var því að vonast eftir, að hv. n. tæki til velviljaðrar athugunar brtt., sem kom fram vegna þessa héraðs. Til þess svo að gera hv. n. hægara fyrir þá flutti ég aðra brtt., svo að um tvo vegarkafla gæti verið að ræða. Brtt. sú hljóðar um það, að Staðarfellsvegurinn, sem nú er þjóðvegur, yrði lengdur frá Staðarfelli að Skarði. Eins og kunnugt er, þá er Dalasýsla afskekkt og hefir orðið útundan með vegabætur. Það er því þeim mun meiri nauðsyn að gera eitthvað fyrir sýsluna nú. Auk þess sem taka má tillit til þess, að mæðiveikin er allmjög farin að herja á þessa sýslu. Verður því vart um annað að ræða til bjargar fyrir fólkið en stofna smjörsamlag og auka þá um leið nautgriparæktina, breyta samlaginu svo síðar í rjómabú. Er því áríðandi, að samgöngurnar séu sem beztar, svo að hægt sé að láta búið ná yfir sem stærst svæði.
Hv. frsm. samgmn. deildi fast á hæstv. forseta og þá, sem flutt hafa brtt. við frv. nú. Ég vildi nú vona, að hann yrði jafnstrangur í kröfum gagnvart sjálfum sér og hann var gagnvart þeim, sem hann deildi á, og stæði við sín eigin orð í nál. Ég get alls ekki tekið brtt. mína aftur, hvað sem aðrir gera með brtt. sínar.