12.04.1940
Neðri deild: 34. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 757 í B-deild Alþingistíðinda. (1884)

16. mál, vegalög

*Eiríkur Einarsson:

Ég þarf ekki að fara að ræða um brtt. á þskj. 404, því að hæstv. forseti (JörB), sem er fyrsti flm. hennar, tók hana aftur. Ég reis úr sæti til að láta í ljós, að mér þótti leiðara, að hv. 2. þm. Rang. (HelgJ) fór með mishermi um það, að ég hefði fallizt á það í n. að taka allar brtt. aftur. Um Partaveg sló ég sérstakan varrnagla, taldi rétt að láta hann koma undir atkv., og mun greiða þeirri till. atkv. mitt.