19.04.1940
Efri deild: 42. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 773 í B-deild Alþingistíðinda. (1906)

16. mál, vegalög

Frsm. meiri hl. (Páll Zóphóníasson):

Herra forseti! Ég vil fyrst leyfa mér að finna að því — þó skal ég ekki fara um það mörgum orðum — að mál eins og þetta sé hespað hér í gegn með þeim hraða, að það fæst hvorki tími til þess að taka framkomnar brtt. fyrir á nefndarfundi né heldur tími til þess að tala við vegamálastjóra, sem á að hafa stjórn þessara mála með höndum, og ekki tími til þess fyrir einn einasta hv. þm. að átta sig á, hvaða brtt. þeir kynnu að vilja gera við vegal. Ég sé ekki, að sé nein ástæða til þessa. En afleiðingin hefir orðið sú, að það liggja fyrir skrifl. brtt. jafnvel frá sömu þm., sem áður eru búnir að bera fram brtt. Þetta sýnir ljóslega, hversu mikið flaustur þetta er. Þm. koma nú með skrifl. brtt. við brtt., sem þeir báru hér fram í gær. Þetta er óforsvaranlegt, og ég vildi mælast til þess við hæstv. forseta, að hann hraði yfirleitt ekki svona málum. Það er ekki þörf að hafa það þannig við mál, sem þurfa að athugast vel.

N. hefir engan fund getað haldið um brtt., sem nú liggja fyrir, og ekki getað athugað þær, ekki getað borið þær undir vegamálastjóra, ekki getað fengið upplýsingar um lengd veganna og ekki heldur, hvar á vegi héruðin eru stödd um að leggja þessa vegi, og ekki getað athugað, hvað það kostar árlega — yfirleitt ekki getað aflað sér neinna upplýsinga um þetta. Vegna þess og þess flýtis, sem er á þessu, hefi ég leyft mér að bera fram brtt. við þskj. 517 og 518, og skal ég nokkuð greina frá þeim.

Fyrri brtt. á þskj. 517 fer í þá átt að leiðrétta það, sem hv. þm. S.-Þ. taldi í sinni ræðu í gær, að ekki væri tími til að leiðrétta. Það var vegurinn í Austur-Skaftafellssýslu. Það eru þarna á parti settir tveir vegir hlið við hlið annarsvegar eins og leið liggur yfir Mýrarnar, en hinn vegurinn um Melatanga. Nú myndi ég líta svo á, að Melatangavegur ætti að vera í A-fl. og kostaður að öllu leyti af ríkinu. Hinn vegurinn, sem myndi hverfa, ef fyrri till. mín yrði samþ., myndi eiga að vera í B-fl., sem væri að mestu leyti kostaður af viðkomandi héruðum. Ég hefi samt sem áður komið með till. um að fella niður 1. gr. l. frá 1928, þannig að ekki verði þarna tveir vegir hlið við hlið að öllu leyti kostaðir af ríkinu. Og í samræmi við þetta er 2. brtt., að e-liður frv. falli niður.

Það kom hér í d. greinilega fram í gær, að meiri hl. af þeim hv. þm., sem atkv. greiddu, en minni hl. þó af þdm., vildu ekki, að nú væri farið að endurskoða vegalöggjöfina og láta slá á frest þessum samþykktum, þar til sú rannsókn væri búin, heldur vildu þeir fá þetta fram nú, án þess þó að kæmi rödd á móti því, að rétt væri að flokka vegina eins og ég legg til og láta héruðin borga nokkurn hluta af nýlagningu þeirra og e. t. v. viðhald, þó síður viðhaldið. Þetta er orsök þess, að ég legg til, að við frv. berði bætt tveimur gr., fyrst aftan við 12. gr., um það, að þessir vegir, sem nú fara í frv., skuli hvað nýlagningu snertir kostaðir að 2/3 af ríkinu, en að öðru leyti af héruðunum. Það, sem fyrir mér vakir með þessu, er að koma þeirri skiptingu á þetta, sem mér finnst eðlilegast, að sé í framtíðinni. Þó skal ég viðurkenna, að í frv. eru tveir vegir, sem ég tel, að ríkið verði að kosta að öllu leyti. En þegar málið er afgr. í þessu flaustri á svo skömmum tíma, sá ég ekki ástæðu til þess að taka þá út úr, heldur verði þeir með í þessu tilfelli. Ég geri ráð fyrir, að ekki liði mörg ár, þangað til að vegirnir verða flokkaðir, og þá megi laga þetta. En það, sem fyrir mér vakir með því að setja þetta ákvæði inn, er, að frekar sé von um, að þá stöðvist ekki vinna í vegum, sem byrjað hefir verið á að leggja. Með því að taka inn í l. ákvæði um þetta vona ég, að í framtíðinni teygist þessir vegir áfram af þeirri fjárveitingu, sem nú er til þeirra ætluð og kallað til sýsluvega.

Í öðru lagi legg ég til, að aftan við frv. komi ný gr., bráðabirgðaákvæði, og þar geri ég ráð fyrir, að ekkert sé lagt fram af ríkissjóði til viðhalds þeirra vega næstu tvö árin, sem nú verða samþ. í þessu frv., sem þó í fjárl. er búið að samþ. fé til, en héruðin verði á þessum tveim árum að sjá um viðhaldið. Þetta er til þess að reyna að tryggja það, að ekki sé dregið úr því fé, sem ætlað er að leggja í þessa vegi, með því að dreifa því yfir þessa vegi.

Með þessum tveimur brtt. vænti ég, að náist þó það heilbrigði í þessum málum, að vegagerð geti haldið áfram í landinu með líkri þróun og nú er, en ekki þurfi að stöðvast vegalagningar á einum 20 stöðum, eins og orðið hefði, ef frv. hefði verið samþ. óbreytt, þar sem ekkert fé er fyrir hendi annað en fjárframlögin til sýsluvegasjóðs og úr hreppasjóðum, en frá hæstv. Alþ. er einskis fjár að vænta, þar sem búið er að samþ. fjárl. fyrir bæði þessi ár, án þess fé sé ætlað þar í þessu skyni. Ég legg því til, að þessar tvær nýju gr. verði samþ., og legg ég aftur á móti miklu minna kapp á, að 1. og 2. brtt. mín verði samþ., og þó að þessi tvöfaldi vegur í Austur-Skaftafellssýslu verði lagður í bili, þá geri ég ráð fyrir, að vegamálastjóri muni gera lítið til þess að halda honum við, svo það kemur þá ekki svo mjög að sök, þótt hann sé lagður, þótt ekki sé það vel viðkunnanlegt, að tveir vegir liggi samhliða í sömu sýslunni með fárra km. millibili, sem báðir eru kostaðir af ríkinu, þegar svo þar að auki eru ekki nema 0,2 km. eftir af sýsluvegunum í sýslunni, sem ekki eru komnir á ríkið. Þá á ég brtt. um, að við bætist nýr vegur frá Hallormsstað og inn að brúarstæði á Jökulsá í Fljótsdal.