22.04.1940
Neðri deild: 47. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 777 í B-deild Alþingistíðinda. (1916)

16. mál, vegalög

*Frsm. (Gísli Sveinsson):

Herra forseti! Þetta mál, sem er frv. til l. um breyt. á vegalögum, hefir haldið áfram sínum gangi gegnum þingið, en inn í það höfðu komizt þeir agnúar frá því, sem samgmn. skildi við það á sínum tíma, að því var hætta búin á göngu sinni. Eins og hv. þm. muna, þá var samgmn. hv. d. sammála um að taka úrval af brtt. frá einstökum þm. upp í frv. N. hafði ásamt vegamálastjóra unnið að þessu og hafði verið svo réttlát að taka til greina vegi úr öllum héruðum þeim, sem brtt. lágu fyrir um frá fulltrúum þeirra. Einnig hafði hún það fyrir augum, hvað langur tími væri liðinn frá því, að vegur úr viðkomandi héraði hefði verið tekinn upp í þjóðvegatölu. Nú vildi svo illa til, að einn hv. þm. virtist ekki vera ánægður með ráðstafanir og till. n., en fór fram á, að sínar till. um upptöku vega í tölu þjóðvega yrðu teknar upp í frv. Það eru engin takmörk fyrir því, hversu hv. þm. geta verið kröfufrekir í þessum málum, jafnvel þó að n. hefði tekið inn í frv. till. frá flestum þeirra og reynt þannig að miðla málum. Það tókst fyrir þessum hv. þm. að koma sínum till. að, og áður var þó búið að taka till. frá honum í frv. Mér finnst hér vera farið út á hálan ís, sem gæfi öðrum hv. þm. illt fordæmi. Hv. þm. sýndu þá tillátssemi að taka allar brtt. aftur í þeirri von, að málið fengi ekki fleiri ágalla, heldur mætti ganga greiðlega gegnum þingið. En það varð nú ekki, því að ýmsir hv. þm. töldu sér skylt að koma með sínar óskir úr sínum héruðum um vegi í þjóðvegatölu. Fyrir nokkra keppni tókst að þvinga inn brtt., sem ekki voru allar þannig vaxnar, að þær stæðust þann hreinsunareld, sem frv. gekk í gegnum. Og þar með var sú gátt opnuð inn í frv., sem brtt. hv. þm. streymdu inn um inn í frv. Og þannig liggur nú málið fyrir nú, að frv. er stórskemmt frá því sem áður var, og sjálfsagt á móti vilja margra hv. þm., einnig í Ed. Hér eru komnir inn 9 vegir samtals í frv. frá því er það var lagt hér fram. Og sumir eru þeir dýrir vegir, sem ekki hefir verið gerð nein vegabót á og ríkið því yrði að byggja að öllu leyti, ef þetta á að ná fram að ganga.

En hv. Ed. lét ekki þar við lenda, heldur tók rögg á sig og samþ., gegn andmælum ýmissa hv. þm., tvær nýjar gr. inn í frv. Það var tekið rannsóknarlaust inn í frv. með þessu, að kostnaður við þessar vegabyggingar skuli ekki aðeins greiddur af ríkinu, heldur að 1/3 hluta af viðkomandi héruðum. Nú vitanlega ætluðust þeir hv. þm. til, sem fengu samþ. vegi, og bjuggust við, að kostnaðinum við þessa vegi væri ekki að meira eða minna leyti dembt yfir á héruðin. Er þó um marga af þessum vegum, sem teknir voru í frv., að mínum dómi alls ekki betur farið en heima setið að setja þá hér í frv., ef samþ. á þessar gr. Ákvæði 3. gr. eru svo fráleit, að það nær ekki nokkurri átt að samþ. þau, þar sem lagt er til, að viðhald þeirra vega, er bætast við tölu þjóðvega eftir frv. þessu, skuli árin 1940 og 1941 kostað af viðkomandi héruðum, því að héruðin munu ekki standast þetta og munu ekki gera það um vegi, sem á annað borð eru komnir inn í þjóðvegatölu. Hvernig svo sem ætti að skipta kostnaðinum, mundu þau ekki taka neitt af honum á sig vegna vega í þjóðvegatölu. Þetta viðhald mundi, ef allt þetta væri samþ., drafnast niður, og það mundi verða hefndargjöf fyrir héruðin að hafa fengið vegum komið í þjóðvegatölu með þessu frv., ef þetta bráðabirgðaákvæði væri samþ. En ef þessar tvær gr. væru burt felldar, höfðu, eins og málið stæði þá, ýmsir hv. þm. rétt fyrir sér með að leggja á það nokkurt kapp að koma vegum, sem í þessu frv. eru, í þjóðvegatölu. Samgnm. hefir athugað þessar till., sem komust inn í frv. í Ed., og n. lítur á þessar tvær gr., sem illu heilli komust þar inn í frv., sem fullkomið skemmdarverk á málinu. Og hún vill ekki eiga hlut í því að samþ. málið í því formi, sem það hefir nú. Hún ber því fram skrifl. brtt. um að fella niður þessar 2. og 3. gr., sem hv. Ed. hefir sett inn í frv., en hefir þó ekki gert brtt. um niðurfellingu þeirra einstöku vega, sem komust inn í frv.

í Ed. Með þessu móti eru að vísu, ef hv. þm. ætla að samþ. þetta allt saman, þessa vegi alla, málin komin í nokkra kös, og verður vandi úr að ráða fyrir ríkissjóð að standa þar að. En hitt nær ekki nokkurri átt, að samþ. það óréttlæti, sem komizt hefir inn í frv. í hv. Ed., að nú skuli demba þessu á héruðin aftur, þar sem þau hafa kannske ekki litið við þessum vegum, sem hér eru till. um að koma í þjóðvegatölu, þar sem teknir eru heilir vegir bara eftir landslagi og ætlazt til, að þeir komi inn í þetta kerfi. Ég mun því fyrir hönd samgmn. bera fram skrifl. brtt., sem hljóðar þannig, að 2. gr. og 3. gr. frv. falli niður.

Að lokum vil ég lýsa því yfir, að þó að samgmn. átelji þessa meðferð alla á frv. í hv. Ed. — því að frá sjónarmiði n. er málið komið út á hálan ís, sem seint verður við það ráðið á — þá mun hún þó láta kyrrt liggja og afskiptalaust um þessa einstöku vegi, sem samþ. voru í Ed., ef samþ. verður brtt. hennar hin skrifl., sem ég hefi þegar lýst, um niðurfellingu 2. og 3. gr. En verði brtt. felld, munu bæði ég og aðrir fleiri nm. greiða atkv. á móti frv. eins og það nú liggur fyrir. Leyfi ég mér svo að afhenda hæstv. forseta þessa skrifl. brtt.