22.04.1940
Neðri deild: 47. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 779 í B-deild Alþingistíðinda. (1920)
16. mál, vegalög
Jón Pálmason:
Á undanförnum árum hefir mátt heita svo, að á hverju þingi hafi legið fyrir frv. um fleiri eða færri breyt. á vegal., og jafnan hafa þessi frv. strandað. Ég fyrir mitt leyti bjóst við, að svo mundi eins fara um þetta frv. nú á þessu þingi. Og ég hefi af þeim ástæðum ekki borið fram neina brtt. um vegi í mínu kjördæmi nú, að ég bjóst við, að það hefði ekki mikla þýðingu. En þegar ég sé, að það er búið að hrúga inn vegum í þetta frv. jafnstórkostlega og raun ber vitni, bæði í þessari hv. d. og hv. Ed., þá finn ég það, að ég get ekki staðið mig við annað en bera fram brtt. til samræmis um einn veg í mínu héraði, sem að sjálfsögðu, eftir því sem ég bezt fæ skilið, væri meiri sanngirni í að taka hér með í þetta frv. heldur en ýmsa vegi, sem nú hafa verið samþ. inn í frv. Þessi vegur er frá Hofi á Skagaströnd að Ásbúðum. Ég vil leyfa mér að afhenda hæstv. forseta skrifl. brtt. um þetta.