22.04.1940
Neðri deild: 47. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 779 í B-deild Alþingistíðinda. (1923)
16. mál, vegalög
*Bjarni Ásgeirsson:
Ég get haft sama formála fyrir því, sem ég segi hér, eins og hv. þm. A.-Húnv. Mér höfðu á öndverðu þessu þingi borizt beiðnir frá nokkrum kjósendum mínum um að flytja brtt. um að bæta einum vegarspotta við í þjóðvegatölu; er þessi spotti á Mýrunum. Ég gerði það ekki, vegna þess, eins og hv. þm. A.Húnv. sagði, að það hefir verið venja á undanförnum árum, að þegar hæfilega margar brtt. hafa verið komnar fram við vegal., þá hefir þeim öllum verið komið fyrir kattarnef. Nú sé ég, að þingið er hér með till. um að bæta allverulega við vegi í þjóðvegatölu með þessu frv. Get ég þá ekki lengur setið hjá, og ber hér fram skrifl. brtt. um að bæta við Þverárhlíðarvegi, sem liggur frá Borgarfjarðarbraut um Hjarðarholt og Arnbjargarlæk að Norðtungu. Þessi vegur liggur um nokkurn hluta Stafholtstungnanna upp í Þverárhlið, sem er mjög afskekkt hvað vegi snertir. Og þar sem svo er ástatt nú um þetta hérað, að það liggur fjárhagslega í sárum vegna fjárpestarinnar, sem hefir gengið þar undanfarin ár, þá treysti ég, þegar tekið er tillit til þessa og líka hins, að sanngirni mælir með því almennt að leggja þarna veg, hv. þd. til þess að sýna mér sama örlæti um samþykkt þessarar brtt. eins og hún hefir sýnt fjölmörgum öðrum. Leyfi ég mér því að afhenda hæstv. forseta þessa brtt. (Viðskmrh.: Jæja! Býður enginn betur?).