22.04.1940
Neðri deild: 47. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 780 í B-deild Alþingistíðinda. (1925)

16. mál, vegalög

*Pétur Ottesen:

Ég skal gjarnan verða við tilmælum hæstv. forseta um að tala ekki lengi um þetta mál nú. Að vísu er nú þannig ástatt fyrir mér, að bæði við 3. umr. þessa máls hér í d. á dögunum og nú hefir einn hv. þm., þm. V.-Sk., reynt mjög að reita mig til reiði, sem honum engan veginn hefir þó tekizt, hvorki þá eða nú, með því að ráðast á mig nokkuð hatramlega og bera mér ýmislegt á brýn, af því að ég fékk hér samþ. eina till. framhjá honum, en með góðu samþykki hans samnm. Hann þarf því ekki að bera fyrir sig n. í þessu. Það er hans eigin persóna, sem hefir særzt svona, svo að hann hefir ekki getað séð mig í friði. Þetta afvegaleiddi hv. þm. svo hrapallega, að hann vildi halda því fram, að ég hefði komið hæstv. forseta til að brjóta þingsköp í sambandi við þessa till. En annaðhvort viljandi eða óviljandi tók svo þessi hv. þm. þetta allt saman aftur, því að hann sló hér fram setningu, þar sem hann át ofan í sig það, sem hann hafði sagt um hæstv. forseta, að hann hefði gengið í bága við þingsköp með því að bera upp þessa till., enda var forseti fljótur að benda honum á það, að hann væri búinn að taka aftur allar aðdróttanir til sín um þingskapabrot í þessu sambandi. Þess vegna er það, að framkoma þessa hv. þm. er harla einkennileg, þegar litið er á þetta allt. Og ég vil draga skýrt strik á milli hans og ýmissa hans samnm. í samgmn., þar sem hann lítur svo á, að eiginlega hafi ekkert leyfi verið til þess fyrir hv. d. að samþ. hér nokkurn skapaðan hlut annað en það, sem n. lagði til. Þetta er ákaflega einstrengingslegur skilningur á aðstöðu n. Og hv. þm. virðist ganga nokkuð á svig við þingræðið, og jafnvel lýðræðið, með því að halda fram þessari kenningu, og það á þeim tíma, sem við skreytum okkur með því að vera lýðræðissinnar, eins og okkur ber að vera. Ég hygg, að þessi þrákelkni hjá hv. þm. hafi ekki haft nein áhrif á gang þessa máls, því að hv. þm. eru upp úr því vaxnir að láta slíka framkomu hafa nein áhrif á sína afstöðu til alvarlegra þjóðmála, eins og þessi mál eru. Því að þessi mál grípa á víðtækan hátt inn í hagsmunamál manna, sem búa í hinum dreifðu byggðum landsins. Það er búizt við hjálp frá því opinbera til þess að hjálpa þessum mönnum til að bjarga sér og standa föstum fótum í þeim atvinnurekstri, sem þeir reka þar til uppbyggingar fyrir þjóðfélagið. Og þessari hjálp er búizt við í þeirri mynd að bæta samgöngur hjá þeim. Það er ekki síður nauðsynlegt, eftir að fólkið í sveitunum er orðið svo fátt sem nú er, því að þeir menn, sem þar eru, þurfa sannarlega að geta komizt sem tálmunarminnst yfir landið, ef þeir eiga að geta búið. Það er því ákaflega hatramlegt, þegar þm., sem er fyrir kjördæmi, sem eins miklum örðugleikum er háð að ferðast um eins og kjördæmi þessa hv. þm., rís hér upp og gerist sérstakur baráttumaður fyrir því, að staðið sé á móti því, að gerðar verði ráðstafanir til þess, að á þarfir þeirra manna, sem í dreifbýlinu búa, til þess að komast yfirleitt yfir landið, sé litið með sanngirni. Þetta er ákaflega kynlegt og einkennilegt framferði. Og það er gott fyrir þennan hv. þm. að fá að þreifa á því, að það er ekki hægt að láta svona skoðanir sigra á hæstv. Alþ., sem að sjálfsögðu er allt af vilja gert til þess að hjálpa mönnum, sem berjast við mikla örðugleika úti um dreifbýlið í landinu. Það byggðist vitanlega á réttum skilningi hv. þm. að samþ. mína sanngjörnu till. á dögunum. Það var ekki eingöngu það, að hv. þm. V.-Sk. áliti sínar brtt. svo helgan dóm, að það mætti ekkert koma nálægt þeim, heldur felldi hann þungan dóm yfir hv. Ed. út af því, að hún gerði nokkrar breyt. á frv. En þetta er ekki undarlegt, því að þar eru þm. fyrir önnur kjördæmi heldur en þeir, sem bera fyrir brjósti áhugamál kjördæma sinna hér í þessari hv. d. Enda er ekki nema eðlilegt, að brtt. hv. Ed.-þm. nái líka fram að ganga. Þau milli 20 og 30 ár, sem ég hefi setið á þingi, hafa verið samþ. till. um þetta frá báðum d. þingsins. Og að því er snertir þá vegi, sem teknir hafa verið upp í frv. í hv. Ed., þá er mér tjáð af form. samgmn. þar, að þeir hafi verið teknir inn í frv. í samráði við vegamálastjóra, alveg eins og var hér í hv. Nd., þannig að honum hefir verið kunnugt um, hvaða brtt. þar var um að ræða. Og það er náttúrlega sjálfsagt að tala við vegamálastjóra um þessa hluti, þó að þingið hafi vitanlega alveg í höndum sér, hvaða samþykktir eru gerðar um einstaka vegi, hvað sem till. vegamálastjóra líður, þó að ég vilji ekkert lítið úr þeim gera í heild.

Inn í þetta frv. hafa svo komizt tvær gr. í Ed., sem ég get tekið undir með hv. þm. V.-Sk., að ég er andvígur, um að setja ákvæði um það, að viðkomandi héruð skuli bera 1/3 hluta af kostnaði við nýlagningu vega þeirra, sem bætast í þjóðvegatölu árið 1940, og ennfremur, að viðhald vega þeirra, er bætast við tölu þjóðvega eftir frv. þessu, skuli árin 1940 og 1941 vera kostað af viðkomandi héruðum. Ég er alveg á móti því, að farið sé að taka upp í vegal. yfirleitt slík ákvæði sem þessi, að láta héruðin standa undir kostnaði af þeim vegum, sem teknir eru upp í þjóðvegatölu á annað borð. En mér skilst hinsvegar, að afgreiðsla frv. í heild geti oltið á því, hvernig þessi ákvæði eru afgr., og virðist mér frá því sjónarmiði engin höfuðsök, þó að þessi ákvæði væru látin standa í frv. Þetta er til eins árs í öðru tilfellinu, en til tveggja ára í hinu tilfellinu. Þessi tími er fljótur að líða. Og þegar hv. þm. V.-Sk. talar um, að það verði erfitt fyrir héruðin að standa undir þessum kostnaði, þá er á það að líta, að þetta er þó mjög mikill léttir frá því, sem nú er, því að nú verða héruðin að standa undir öllum lagningarkostnaðinum á þessum vegum. Með samþykkt frv. í þessu formi fá héruðin styrk til nýbygginga þessara vega, þar sem þau fá hann nú engan. Þó ég því sé á móti þessu ákvæði yfirleitt, vil ég, samkvæmt því, sem ég hefi sagt, að svo komnu máli sætta mig við þetta form til samkomulags við hv. Ed., því að það er tryggasta leiðin til þess að fá frv. afgr. sem lög frá Alþ. nú þegar. Og ég verð að segja, að það er þó nokkur viðurkenning á þörfum manna í dreifbýlinu og hugnun fyrir þá, sem eru að berjast fyrir vegagerð þar, að fá þá viðurkenningu frá þinginu, sem felst í þessu frv. eins og það er nú. Þess vegna vildi ég mjög mælast til þess við hv. þdm. hér, að við, sem viljum gera það, sem við getum, til þess að létta undir með mönnum, sem búa við erfiðar vegasamgöngur og hafa lítið fjármagn til þess að greiða úr þeim erfiðleikum af eigin rammleik, tökum nú höndum saman og stuðlum að því, að frv. fái framgang eins og það liggur fyrir. Ef frv. verður breytt, þá er vísast, að það dagi uppi eða verði fellt í þinginu.

Ég verð að segja það út af þeim brtt., sem eru fram komnar frá hv. þm. A.-Húnv. og hv. þm. Mýr., að mér þykja þeir vera seint á ferð með sínar brtt. Þetta frv. er búið að liggja hér fyrir þinginu síðan á öndverðu þingi, og þess vegna hefir verið nægur tími til þess að koma með brtt. Og ég get ekki skilið það, að þeir eru nú fyrst að koma með sínar brtt., öðruvísi en svo, að þetta sé nokkurskonar tilræði við frv., að bera þessar brtt. fram svona á síðustu stundu, þar sem þær eru líklegar til þess að verða þáttur í því, að bæði þessum till. og öðru í frv. verði siglt í strand. Og þar sem hér er verið að leitast við að hjálpa til með þessu frv. að létta afkomu þeirra, sem við erfiðar samgöngur og ýms önnur erfið kjör eiga að búa í dreifbýlinu, þá er það nokkuð harðleiknislegt gagnvart þessu fólki, ef það verður nú á síðustu stundu farið að slökkva fyrir því þann vonarneista, sem skapazt hefir hjá þessum mönnum um það, að hér ætti að létta þeim nokkuð sóknina með því að rétta fram hönd til þess að greiða úr erfiðum samgöngum hjá þeim.