22.04.1940
Neðri deild: 48. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 785 í B-deild Alþingistíðinda. (1931)

16. mál, vegalög

*Pétur Ottesen:

Ég skal að sjálfsögðu verða við þeim tilmælum hæstv. forseta að lengja umr. þessar ekki mikið, úr því sem orðið er, þar sem líka komið er fram á nótt.

Þrátt fyrir hinn mikla áróður hv. þm. V.-Sk. um þennan umrædda Uxahryggjaveg, sem hv. d. samþ. um daginn, hefir honum engu tekizt að fá umþokað. Það er alkunna, að þessum hv. þm. þykir gaman að halda ræður, og þá sérstaklega að hlusta á sjálfan sig. Hitt er annað mál, hversu gaman öðrum þykir að hlusta á hann. Hann hefir nú, hv. þm., þegar haldið þrjár stólparæður um þennan vesalings Uxahryggjaveg og á kannske eftir að halda þá fjórðu, en ég býst við, að allt komi fyrir ekki. Þá var hann að tala um það, hv. þm., að samgmn. hefði ekki getað sinnt till. þeim, sem fram komu. Þetta er ekki rétt, heldur er hitt áreiðanlegt, að n. var öll á einu máli um að taka veg þennan upp í frv., að undanteknum þó þessum hv. þm. Af því að hann var þessu ekki samþykkur, telur hann, að n. hafi ekki tekið ákvörðun um þetta. Hv. þm. virðist hér sem endranær líta á sig sem einhvern einvaldsherra, sem öllu eigi að ráða. En hann má vara sig á því, að hann skripli ekki á því sköturoðinu.

Annars vil ég, svona í mestu góðvild, benda hv. þm. á, að hann er bara réttur og sléttur þm. hér á Alþingi eins og ég, og það meira að segja einn af smærri spámönnunum (GSv: Ég vísa öllum þessum vaðli hv. þm. Borgf. heim til föðurhúsanna). Þá var hann að tala um það, hv. þm., að það væri engin fjárveiting til vegna þessara nýju vega. Þetta er ekki allskostar rétt; úr þessu er einmitt bætt með þeim drápsbagga, sem hv. Ed. lagði á héruðin vegna hinna nýju vega. Þá vildi hann vera að bera mér á brýn ábyrgðarleysi sem formanni fjvn. Þessi og því lík ummæli fara bara ekki vel í munni þessa hv. þm., hans, sem hefir lagzt allra þm. harðast á móti flestum þeim till. fjvn., sem miðað hafa að því að draga úr kostnaði ríkissjóðsins.

Ég skal svo fara að láta útrætt um þetta mál. Þessi margumræddi vegur hefir verið samþ. af hv. d., og hefir hún því gefið hv. þm. V.-Sk. bezta svarið.

Úr því sem komið er, held ég, að réttast verði að samþ. frv. óbreytt eins og það liggur fyrir nú.