23.04.1940
Efri deild: 48. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 790 í B-deild Alþingistíðinda. (1947)

16. mál, vegalög

*Frsm. minni hl. (Jónas Jónsson):

Ég vildi aðeins benda á, að það er miklu réttara að fella frv. hreinlega heldur en að samþ. þessa brtt., sem nú hefir verið borin fram og samþ. afbrigði fyrir, með því að búið er að fella þetta atriði í hv. Nd. Þess vegna er það að samþ. þetta hér sama sem að fella frv., þó að það sé ekki eins hreinleg aðferð. Ég lít því þannig á, að þeir, sem vilja fella frv., eigi að ganga hreint að því.

Ég vildi beina máli mínu til skrifstofustjóra fjármálaráðuneytisins, sem er sá eini, sem hér er mættur af valdamönnum stjórnarinnar, sem hefir óbeint með þetta atriði að fara, og spyrja hann, hvort hann ekki treysti sér til samkv. sinni stöðu að framkvæma hreint og beint vegal. eða leggja til við stjórnina að framkvæma þau eftir þeim till., sem hv. Ed. hefir lagt til. Þessi d. hefir staðið nokkuð fast saman um það að benda á þessa leið, sem hefir verið fellt í Nd., að farin verði. En það er hægt að ná því takmarki, sem vakir fyrir d., einmitt með því að samþ. frv., en með því, að þessi hv. skrifstofustjóri, sem er það fasta vald í stjórnarráðinu viðvíkjandi fjárframlögum, beiti 12. gr. vegal. gagnvart þessum vegum um þau tvö ár, sem um er að ræða. Ef þessi hv. þm. treystir sér til að gera það, þá er það sama og l. Því að enginn vegamálastjóri eða ráðh. fer að breyta á móti því, sem svona væri tryggt af skrifstofustjóra í ráðuneytinu og stuðningi þessarar hv. d. Ef hv. þm. sér sér ekki fært að gera þetta finnst mér hann bregðast sinni trú í þessum efnum. Þetta er algerlega á hans valdi í stjórnarráðinu, og mundi líka hafa þau áhrif, að hægt væri einmitt í samráði við vegamálastjóra að beita þessu víðar. Því að í hans sýslu hefir þessi gr. á undanförnum árum verið notuð um þrjá vegi. Og kenni ég ekki í brjósti um aðrar sýslur, þó að slíkt hið sama væri gert þar líka. Ég vil skjóta því til hv. 11. landsk. sem skrifstofustjóra ráðuneytisins og sem þm. að bjarga þessu máli með stjórnarfarslegri röggsemi.