03.04.1940
Sameinað þing: 12. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 794 í B-deild Alþingistíðinda. (1955)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir o.fl.
*Brynjólfur Bjarnason:
Herra forseti! Ég vildi leyfa mér að bera hér fram litla spurningu til þess hæstv. ráðh., sem fer með utanríkismál.
Það var hér fyrir nokkru síðan, að það urðu nokkrar umr. um það, hvort gerðir hefðu verið verzlunarsamningar milli Íslands og Stóra Bretlands. Því var haldið fram í einu blaði bæjarins, að slíkir samningar hefðu verið gerðir, en því var harðlega mótmælt af öllum blöðum þeirra flokka, sem að hæstv. ríkisstj. standa, og að mér skilst í nafni hæstv. ríkisstj. En frá því er svo skýrt í skeyti til Morgunblaðsins í dag, að Chamberlain, forsætisráðherra Stóra Bretlands, hafi í ræðu, sem hann hélt, skýrt frá því, að verzlunarsamningar hefðu verið gerðir milli Stóra Bretlands og nokkurra landa, sem hann hafi tiltekið, og að í þeim samningum séu ákvæði um takmarkanir á útflutningi til Þýzkalands. Meðal þeirra landa, sem forsætisráðherra Stóra Bretlands nefndi, að gert hefðu slíka verzlunarsamninga við Stóra Bretland, er Ísland.
Nú vildi ég leyfa mér að spyrja hæstv. ráðh., hverju þetta sætir, hvort forsætisráðherra Stóra Bretlands fer hér ekki með rétt mál, og hverju það sætir, að blöðin hafa, að því er virðist í nafni ríkisstj., neitað því, að slíkir samningar hafi verið gerðir. —
Herra forseti! Má ég endurtaka fyrirspurn mína, þar sem nú er kominn inn í þingsalinn hæstv. ráðh., sem fer með utanríkismál, sem ekki var viðstaddur hér áðan, þegar ég bar fram fyrirspurn mína? (Forseti PO: Já).
Það hefir verið skýrt frá því í Morgunblaðinu í dag, að Chamberlain, forsætisráðh. Stóra Bretlands, hafi skýrt frá því, að gerðir hafi verið verzlunarsamningar milli Íslands og Stóra Bretlands, er feli í sér takmörkun á útflutningi til Þýzkalands. Nú hefir þessu áður verið neitað í blöðum hér, og vildi ég spyrja hæstv. ráðh., sem fer með utanríkismál, hverju þetta sætti.