09.04.1940
Neðri deild: 32. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 795 í B-deild Alþingistíðinda. (1957)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir o.fl.
Thor Thors:
Herra forseti! Undanfarinn sólarhring hafa þeir stórviðburðir gerzt á sviði utanríkismála, að sjálfstæði og fullveldi frændþjóða okkar á Norðurlöndum er stofnað í mikla hættu, ef ekki afnumið. Ég geri ráð fyrir, að við Íslendingar munum hafa nokkra ástæðu til að óttast, að á sama veg kunni að fara um okkur. Mér finnst nauðsyn, að ríkisstj. kalli þm. nú þegar á lokaðan fund um þessi mál.