18.03.1940
Neðri deild: 20. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 795 í B-deild Alþingistíðinda. (1961)

Afgreiðsla mála úr nefndum

Bjarni Bjarnason:

Einhvern fyrstu daga þessa þings bar ég fram frv. ásamt hæstv. forseta um afnotarétt og meðferð jarðhita. Þetta mál var fyrir síðasta þingi og var þá afgr. með nokkrum breytingum af allshn. þessarar hv. d. En í framsöguræðu minni gat ég þess, að við flm. féllumst á, að frv. yrði afgr. í því formi, sem hv. Nd. gaf því á síðasta þingi. Ég held, að ekki hafi orðið nein mannabreyting í hv. allshn., þó að nokkur skipulagsbreyting hafi að vísu orðið, þar sem skipt hefir verið um formann, og þykir mér því undarlegt, að ekki skuli vera hægt að fá málið úr n., ekki sízt þar sem það var afgr. til n. eftir till. hennar sjálfrar. Ég hefi innt hv. n. eftir þessu og komizt að raun um, að ekki muni vera ágreiningur um málið innan hennar. En mér er mikið áhugamál, að málið komi sem fyrst úr n.