23.04.1940
Efri deild: 49. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 799 í B-deild Alþingistíðinda. (1973)

Starfslok deilda

forseti (EÁrna):

Þar sem þetta verður síðasti fundur d., þá vildi ég fara fram á það við hv. dm., að þeir gæfu mér leyfi til að undirskrifa þær fundargerðir, sem eftir er að bóka, og ef enginn hv. dm. mótmælir því, þá skoða ég það samþ.

Þegar við erum að hætta störfum í d. og skilja að þessu sinni, þá vil ég þakka hv. dm. fyrir prýðilega framkomu í minn garð, sem hefir verið þannig, að ég hefði ekki getað á betra kosið. Ég veit, að það hefir talsvert skort á um mín störf í d., en ég hefi fundið, að ég hefi ætíð átt hlýju að mæta hjá hv. dm.

Ég vil að lokum óska öllum hv. dm. góðrar líðunar og þeim, sem eiga ferð fyrir höndum til heimila sinna, góðrar ferðar.