14.03.1940
Efri deild: 17. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 16 í C-deild Alþingistíðinda. (2006)

9. mál, brúasjóður

Brynjólfur Bjarnason:

Herra forseti! Ég hefi komið fram með brtt. við þetta frv., sem eru í því fólgnar, að hann sé felldur niður þessi sérstaki skattur á benzíni, sem frv. gerir ráð fyrir, en það sé aftur á móti ákveðið í fjárl., að ríkissjóður leggi álíka háa upphæð og gert er ráð fyrir að fáist með þessum aukna benzínskatti í sjóð, sem nefnist brúasjóður.

Ég hefi ekki treyst mér til að greiða atkv. um þetta frv. án þess að gera þessar brtt., því sannleikurinn er sá, að hér er um tvö óskyld mál að ræða, og þegar þeim er blandað saman, þá er ekki hægt að greiða atkv. um þau. Það verður fyrst að greiða málin í sundur, áður en hægt er að greiða atkv. um þau.

Um mig er það að segja, að ég er samþykkur öðru málinu, en andvígur hinu. Ég er andvigur því, að lagður sé hærri skattur á benzín, en ég er samþykkur því, að stofnaður sé sérstakur sjóður til brúagerða. Það er einmitt sérstaklega nauðsynlegt nú, á meðan ófriðurinn stendur, að safnað sé í sjóð í þessu skyni, svo hafizt verði handa um brúagerðir með því meiri krafti, þegar hægara verður að byggja þær, vegna þess að kostnaður við efni hefir minnkað.

Ég sé ekki annað en að þeir, sem áhuga hafa fyrir því, að þetta mál nái fram að ganga, hljóti undir öllum kringumstæðum að geta fallizt á, að þessu máli sé þannig skipt í sundur, vegna þess, að það eru ekki miklar líkur til, að málið nái fram að ganga, ef svona óskyldum málum er blandað saman. Það hefir líka komið fram í d., að ýmsir eru andvígir því, að lagður sé aukaskattur á benzín, en enginn hefir mælt á móti því, að stofnaður verði sérstakur brúasjóður. Það hefir líka komið fram það álit manna, að það væri rangt að fara inn á þessa braut, að binda þannig með sérstökum l. ákveðna skatta, sem ætlað er að ganga til ákveðinna framkvæmda, svo með því væri aftur horfið að því ráði, sem áður átti sér stað, að það voru óteljandi skattal., þar sem ákveðið var, að þessi og þessi skattur gengi til þessara og þessara framkvæmda, í stað þess að hafa ein tollal. og ákveða svo í fjárl., hvernig þeim skuli varið.

Um þetta hélt hv. 1. þm. Reykv. hverja ræðuna á eftir annari, og hverja annari snjallari, en það bregður svo undarlega við, að þegar hann er að gera brtt. við frv., þá gerir hann enga brtt. um þetta. Eftir hans till. er þetta áfram bundið á þann hátt, sem honum fannst rangt að gera.

Hv. þm. afsakar sig með því, að búið sé að samþ. þetta í d. Það er rangt hjá honum, því það er aðeins búið að greiða atkv. um þetta mál til 3. umr. Það er ekki búið að sanna sig fyrr en búið er að greiða atkv. um það við 3. umr. hvort meiri hl. er með því eða ekki.

Hv. 1. þm. Reykv. lét í veðri vaka, að hann væri andvígur því, að lagður væri hærri skattur á benzín, en meðmæltur því, að lagt væri til hliðar fé til brúagerða. En samkv. till. hans er lagt til, að þessi viðbótarskattur á benzíni haldist. Það gæti náttúrlega hugsazt, að tilgangurinn með þessari till. hv. þm. væri sá, að drepa málið, en þá hefir hann heldur ekki verið heill í áhuga sínum fyrir því, að stofnaður væri brúasjóður. Það er annaðhvort, að það er rangt, að hann sé andvígur því, að lagður sé sérstakur aukaskattur á benzín, eða það er ekki rétt, að hann hafi áhuga fyrir því, að lagt sé til hliðar fé til brúagerða.

Ég sé ekki, að neinn annar kostur sé fyrir þá, sem hafa áhuga fyrir því, að eitthvað sé gert til þess að greiða fyrir því, að fé verði fyrir hendi til nauðsynlegra brúagerða í landinu, en að breyta frv. eins og hér er farið fram á.

Þeir, sem álíta, eins og hv. þm. N.-M, að það eigi að afla fjár til þessara framkvæmda með viðbótarskatti á benzíni, geta gert sérstakar till. um það. Þeir geta t. d. komið með brtt. við tollskrána um það, hvernig afla skuli fjár til þessara framkvæmda. Það er ekkert annað en leggja stein í götu málsins, að binda það saman eins og hér er gert. Það er þess vegna af áhuga fyrir málinu sjálfu, að ég ber fram þessar brtt.